Er eitthvað eðlilegt við það borgarstjóri Reykjavíkur, sé í sölubisness sem leikari , samtímis starfi sem borgarstjóri ?

Ég er ansi hrædd um það að Jón frændi minn fram í ættir, kunni hugsanlega að falla í þann pytt að vita ekki hvar skal draga mörkin varðandi það atriði að gegna starfi borgarstjóra og vera einnig í útrás sem kvikmyndastjarna á sama tíma.

Gæti það kallast spilling ?

Hann er súper leikari en ef hann vill vera í stjórnmálum þá þarf hann að setja sig inn í það hið sama svið, og framgangur hans og flokksins varðandi skólamál í borginni, verður ekki til þess að auka hróður hans hér á landi.

Því miður.

kv.Guðrún María.


mbl.is Borgarstjóri í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Jón Gnarr er sjálfsumglatt fífl.  

Vilhjálmur Stefánsson, 22.4.2011 kl. 00:26

2 identicon

Jón Gnarr er í páskafríi og má fara til New York ef honum sýnist.

Jóhann (IP-tala skráð) 22.4.2011 kl. 00:27

3 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Ja mikill er andskotinn.        

Vilhjálmur Stefánsson, 22.4.2011 kl. 00:34

4 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Já, hvað skal  segja! hann á að halda sig við húmoristan, ekki stjórnmál!

Guðmundur Júlíusson, 22.4.2011 kl. 01:01

5 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Það væri auðvitað best að hann væri sem minnst heima.Nógur er nú skandallinn samt!!

Eyjólfur G Svavarsson, 22.4.2011 kl. 01:16

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hann notar borgarstjóratitilinn til að "selja" sig sem skemmtikraft í útlöndum.

Var hann kosinn til þess?

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.4.2011 kl. 03:45

7 Smámynd: Eyþór Örn Óskarsson

Alveg finst mér furðulegt hvað fólk er fljótt til að agnúast út í borgarstjórann - má hann aldrei um frjálst höfuð strjúka fyrir ykkur........??????????

Eyþór Örn Óskarsson, 22.4.2011 kl. 03:49

8 identicon

„Fólk vill meiri raunveruleika í stjórnmál...." segir súper leikarinn.

Ætli það sé svona svipaður raunveruleiki og fara með konu og ung börn sín á klæðaskiptingastað og láta þau horfa á sig niðurlægðan?  Og væla síðan undan - hvað HONUM líður illa? Ja svei.

- Það verður að kunna sér einhver mörk bæði í starfi og leik.

Maður skammast sín fyrir að þetta sé borgarstjóri höfðuborgar Íslands.

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 22.4.2011 kl. 12:42

9 identicon

Sæl

Er ekki kominn tími til að breyta skólakerfinu og bæta það,svo öllum líði vel þar,þá getum við hætt að dæla ritalíni í börnin sem fitta ekki inn í þetta gamaldags og úrelta kerfi

Helga (IP-tala skráð) 22.4.2011 kl. 17:28

10 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Borgarstjórinn verður að taka gagnrýni á eigin athafnir í pólítik, og sá hinn sami er borgarstjóri þótt það sé páskafrí.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.4.2011 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband