Batnandi mönnum er best að lifa.

Það er afar ánægjulegt að ekki skuli verða frekari tafir varðandi það atriði að koma þessu verki á koppinn.

Nóg er samt.

kv.Guðrún María.


mbl.is Samið á næstu dögum um Suðurlandsveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Þetta er alveg með ólikindum Guðrún, núna eig menn að vera að undirbúa tvöföldun í Hvolsvöll.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 9.8.2010 kl. 23:40

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Högni það er einmitt málið allt dregst á langinn og menn draga lappirnar og kæra hægri vinstri ljóta þjóðfélagið

Sigurður Haraldsson, 10.8.2010 kl. 00:40

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Hákærufell virðist komið á nýja braut.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 10.8.2010 kl. 05:20

4 Smámynd: Jóhann Gunnar Stefánsson

Við skulum ekki gleyma því að upphaflega kæra Háfells varð til þess að Vegagerðin var neydd til þess að fara að lögum sem var ekki það sem þeir lögðu upp með. Þeir þurftu því samkvæmt úrskurði að draga til baka afar hæpna ákvörðun.

Þessi niðurstaða kærunefndarinnar sem nú hefur verið kynnt er einungis hluti þeirrar kæru sem til umfjöllunar er í heildarkærunni. Hún þýðir einfaldlega að minni hagsmunir eru látnir víkja fyrir meiri. En er eins og skýrt kemur fram einungis til bráðabirgða þar til endanleg niðurstaða kærunefndarinnar verður birt. Það má búast við að það taki nokkrar vikur. Ef niðurstaðan verður óbreytt er málið dautt en annars má búast við skaðabótaskyldu VG gagnvart verktakanum. Verkið er hinsvegar komið af stað og því ber að fagna.

 Fyrir vikið virðist sem svo að Hákærufellsmenn séu komnir út af sakramentinu hjá VG og jafnvel ekki hlotið réttláta meðferð hjá þessarri frómu stofnun og um það snýst núverandi kæra.

Það má ekki gleyma því að við opinber innkaup ber að fara eftir leikreglum og lögum. Ef opinberar stofnanir hafa ekki fagleg vinnubrögð að leiðarljósi má búast við ámóta töfum og kærum. Persónulegar vangaveltur og eða huglægt mat er ekki hluti af slíku ferli. Það sýna lög um útboðsmál skýrt.

Þá má líka hafa það hugfast að kærur sem þessar eru til hagsbóta fyrir alla þegar upp er staðið, þar sem verið er að leitast við að fá ýmis óklár mál á hreint og skýra leikreglur.

Jóhann Gunnar Stefánsson, 10.8.2010 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband