Ríkisstjórnin veldur veikingu krónunnar með skattahækkunum.

Getur það verið að ein ríkisstjórn í einu landi hafi ekki reiknað út heildaráhrif skattahækkana í hagkerfinu ?

Er það meining ríkisstjórnar landsins að veikja gengi krónunnar, eða hvað ?

Hvað þarf mörg orð til þess að benda á þessa kolröngu stefnu ?

kv.Guðrún María.


mbl.is Gengið ekki lengur áhrifavaldur heldur skattahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Var ekki krónan að styrkjast ? kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 24.12.2009 kl. 00:35

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Er Frjálslyndi flokkurinn farinn að styðja ríkisstjórnina ?

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.12.2009 kl. 01:20

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Ekki svo ég viti en við erum ekki svo andvíg henni að við förum með rangt mál út af því. Nóg er nú samt hægt að tína til. Mér sýnist stjórnin föst í þráhyggju bara af því að þau geta ekki bakkað. Ef þau gera það eru báðir flokkarnir búnir að vera og eru það kannski. Mörgum blöskrar að einmitt þessir flokkar skuldi ætla að gefa Björgólfi Thor annað tækifæri í atvinnulífinu, manni sem hefur snúið svikamyllunni síðustu árin, eftir kvótaframsalið reyndar. Þau eru búin að króa sig af í Icesave og umsóknarferlinu. Hins vegar var ég stödd í Sparisjóðnum í dag og sá að allt gengi var að koma niður nema kanadadollar og því kom mér þessi færsla þín á óvart. Hélt að þú værir með nóg efni að moða úr. Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 24.12.2009 kl. 09:38

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl aftur Kolla.

Það er náttúrulega fínt að hífa og slaka eftir hentugleikum, þ.e. vera með og á móti, sitt á hvað, en ég man ekki eftir þvi að hafa heyrt stakt orð frá formanni Frjálslynda flokksins opinberlega frá síðustu kosningum, og því mætti halda að hann styddi núverandi stjórn.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.12.2009 kl. 00:16

5 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já Sæl Guðrún María og gleðilega jólahátíð. Það er náttúrlega kostur að hífa og slaka á réttum stað og tíma ef við setjum þetta í samband við sjómennskuna en ég held að þetta eigi ekki við um álit okkar á ríkisstjórninni. Guðjón formaður hefur verið að starfa fyrir ríkisstjórnina að móta stefnu í sjávarútvegsmálum að einhverju leyti. Það er svo líka önnur spurning af hverju hann ætti að vera að sperra sig eftir þá útreið sem hann og við í Frjálslyndum fengum í síðustu kosningum. Ekki finnst mé ég að við skuldum þjóðinni neitt. kveðja til þin Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 25.12.2009 kl. 08:44

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Finnst mér átti þetta að vera .

Kolbrún Stefánsdóttir, 25.12.2009 kl. 08:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband