Er einhver munur á stefnu Íhaldsins og Samfylkingarinnar ?
Sunnudagur, 29. janúar 2012
Þessir flokkar sátu saman í fyrri ríkisstjórn og ekki komst fleygur milli forystumannanna þá, ef ég man rétt.
Oft hefur mér fundist markaðshyggja Samfylkingarmanna vera komin hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn, og Evrópuferðalagið er lítið annað í raun.
Hræðslan við Íhaldið heldur Samfylkingunni hins vegar saman , nú sem endranær.
kv.Guðrún Maria.
|
Landsdómsmálið fleygur íhaldsins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um daginn og veginn.
Laugardagur, 28. janúar 2012
Ósköp er ég stundum þreytt á því að geta ekki það sem ég gat áður en ég rek mig stundum á veggi hér og þar og þannig verður það víst að vera, því ég læri jú hvar mörkin liggja í þvi hinu sama.
Lífið heldur áfram þótt maður sjálfur sé eins og maður er og maður þarf að aðlaga sig því hinu sama með þeim takmörkum sem þarf þar að lútandi.
Ég er búin að detta ofan í prjónaskap sem drepur tímann og ég hef gaman af en það þýðir að passa sig samt á þvi að sitja ekki of lengi í einu við það.
Hvers konar ferðalög milli staða undanfarið hefur þýtt það að mest öll orka fer í eitt ferðalag í snjóaveseni þvi sem við höfum haft, fyrir mig.
Leggjast og hvíla sig eða fara í bakbeltið eru mín meðul við verkjaveseninu sem hreyfingin orsakar, verkjalyf tek ég ekki nema ég sofi ekki vegna verkja.
Er núna búin að vera i sjúkraþjálfun tvisvar í viku frá lokum nóvember 2010, og það hjálpar vissulega, en ég bíð eftir göngufæri til að geta farið út að ganga, því til viðbótar.
Ég má ekki hlaupa, bara ganga en má ganga eins mikið og ég treysti mér til.
Ég er í raun mikið náttúrubarn og lít svo á að alls staðar getum við notið náttúrunnar einnig hér á höfuðborgarsvæðinu, eins og í minni fallegu sveit milli sanda.
Hafnarfjörðurinn er náttúruparadís, og ekkert er betra en að labba meðfram læk með sinn lækjarnið sem er innan seilingar í mínu nánasta umhverfi.
Allt spurning um að koma sér út úr húsi til þess arna.
kv.Guðrún María.
Athyglisvert verkefni.
Laugardagur, 28. janúar 2012
Ég held að það sé mjög jákvætt að skoða hvar leikur styður nám og öfugt og vonandi er að þessi rannsóknarvinna verði einnig samtengd yfir til grunnskólans sem aftur ætti að vera hægt að fá enn betri sýn á þá rannsóknarþætti sem hér er um að ræða.
Jafnframt hvar og hvenær hugsanlega þarf að hlúa að ákveðnum þáttum en frumbernskan er og verður afar stór kapítuli af okkur til framtíðar.
kv.Guðrún María.
|
Vilja auka þekkingu á leikskólastarfi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Læknum ber að afhenda Landlækni slíkar upplýsingar.
Laugardagur, 28. janúar 2012
Það er sérkennilegt ef Landlæknir fær ekki upplýsingar sem eftirlitsaðili um hvers konar lækningastarfssemi í landinu, og það atriði að þær séu persónugreinanlegar er eitthvað sem embættið hlýtur að geta farið með rétt eins og læknarnir sjálfir.
Raunin er sú að ef sjúklingur leitar til Landlæknis og óskar eftir aðstoð við að fá þessar upplýsingar gegnum hann sem eftirlitsaðila, þá er læknum skylt að afhenda þær embættinu.
Það er því ótrúlegt að sjá þennan fyrirslátt í þessu sambandi af hálfu lækna og félaga þeirra.
kv.Guðrún María.
|
Munu ekki afhenda upplýsingar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Og þeir þvo hendur sínar af fyrri afgreiðslu málsins, eða hvað ?
Fimmtudagur, 26. janúar 2012
Níutíu prósent flokksmanna Samfylkingar í Reykjavík vilja hefta málfrelsi á Alþingi að virðist, þegar kemur að tillögu um það að endurskoða aðferðafræði þingsins varðandi það að senda einn mann til að ákæra en sleppa flokksmönnum Samfylkingarinnar í þeirri hinni sömu atkvæðagreiðslu.
Samt sátu báðir þessir flokkar saman við stjórnvölinn, er hrunið dundi yfir.
Með öðrum orðum, það virðist eiga að gera upp hrunið með þvi að gæta þess vandlega að ekki falli kusk á hvítflibba eigin flokks, með málamyndarsjónleik hér að lútandi um vandlætingu á því að samþykkja ekki tillögu um frávísun.
Það færi betur að þakka fyrir það að menn gætu myndað sér sjálfstæða skoðun á málinu, eftir fyrri aðferðafræði flokksins á þinginu.
kv.Guðrún María.
|
90% fundarmanna ósátt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Áttu aldrei að leggjast af.
Miðvikudagur, 25. janúar 2012
Því ber að fagna ef menn vilja nú stuðla að því að hefja strandsiglingar að nýju, í stað þess að vera með alla flutninga á vegunum eins og verið hefur um tíma.
Mín skoðun er sú að þessar siglingar hafi aldrei átt að leggjast af, en batnandi mönnum er best að lifa og vel að menn skuli nú vera með þann kost uppi á borðinu.
kv.Guðrún María.
|
Strandsiglingar hefjist að nýju |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Obb bobb bobb, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur undir sömu sæng í Kópavogi !
Þriðjudagur, 24. janúar 2012
Mikið lifandis skelfingar ósköp er það nú gott að menn skuli hafa fundið samvinnuhugsjónina til þess að axla þá ábyrgð að stjórna nágrannabæjarfélaginu Kópavogi, sem hefur verið stjórnlaust í nokkra daga, eftir að meirihlutinn sprakk.
Það er hins vegar nokkuð hjákátlegt að sjá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk fara saman i eina sæng um þessar mundir, á þessum tímapunkti í landsmálum.
Vonandi til góðs.
kv.Guðrún María.
|
Ræddu samstarf við D-lista |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Það þarf ekki að gagnrýna forseta Alþingis í þessu máli.
Þriðjudagur, 24. janúar 2012
Það hefur verið forvitnilegt að fylgjast með því argaþrasi sem til staðar er eftir að lýðræðislegur meirihluti Alþingis ákvað að vísa frá frávísun um að mál kæmi á dagskrá þingsins.
Málamyndarsýndarmennska þess efnis að " hrunið verði ekki gert upp " ef fallið verði frá ákæru á fyrrverandi forsætisráðherra, einan er einfaldlega fáránlegur málflutningur í anda meints populisma, þar sem atkvæðagreiðslan um tillögur þingnefndarinnar varð að skrípaleik sem öllum var ljós.
Raunin er sú að forseti þingsins hefur staðið vörð um lýðræðislega meðferð mála þingmanna á þingi og því ber að fagna og hún á heiður skilið í því efni.
kv.Guðrún María.
|
Lýðræðisleg niðurstaða |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ekki heil brú í þessum málflutningi.
Mánudagur, 23. janúar 2012
Ef einhver á traust þá er það forseti þingsins fyrir að taka mál á dagskrá, og það atriði að vilja vinna gegn því hinu sama er einfaldlega út úr kú.
Að safna undirskriftum um vantraust þegar búið er að fella frávísunartillögu um málið er allt að því hjákátlegt.
Hamagangur Hreyfingarinnar í þessu máli er afar sérstakur.
kv.Guðrún María.
|
Vill vantraust á Ástu Ragnheiði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Og moldin rýkur í logninu.
Mánudagur, 23. janúar 2012
Ungir jafnaðarmennn ættu að líta í eigin barm og stórmerkilegt að þeir hafi ekki sent frá sér yfirlýsingu þegar þingmenn Samfylkingar sáu um það að sleppa sínum mönnum við ákæru um Landsdóm en greiða atkvæði með því að Geir væri ákærður.
Þar liggur vandi þessa máls, svo í upphafi skyldi endir skoða.
kv.Guðrún María.
|
Lýsa vantrausti á forseta Alþingis |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


utvarpsaga
heimssyn
nafar
einarbb
bjarnihardar
asgerdurjona
valli57
georg
sveiflan
estersv
stebbifr
zumann
magnusthor
kristbjorg
tildators
agny
launafolk
axelthor
gammon
gagnrynandi
bergthora
bleikaeldingin
ea
sigrunb
kristinn-karl
floyde
ekg
hjolagarpur
hannesgi
baldvinj
kokkurinn
deux
malacai
gattin
hlini
gjonsson
gudjul
bofs
gudnibloggar
gudrunarbirnu
gudruntora
jonmagnusson
heidabjorg
zeriaph
hallarut
skulablogg
hallgrimurg
hbj
fuf
xfakureyri
morgunblogg
helgigunnars
kolgrimur
hrannarb
jevbmaack
jakobk
johanneliasson
jonlindal
jonvalurjensson
jonsnae
nonniblogg
joninasolborg
kristjan9
kjartan
kjarrip
kolbrunerin
lydvarpid
makeupgallery
martasmarta
morgunbladid
mal214
raggig
redlion
seinars
salvor
fullvalda
duddi9
sigurjonn
sigurjonth
siggiholmar
sisi
siggisig
siggith
lehamzdr
bokakaffid
spurs
valdimarjohannesson
valdileo
vefritid
vestfirdir
villidenni
villialli
brahim
olafia
konur
rs1600
veffari
sparki
lydveldi
solir
olafurfa
omarbjarki
svarthamar
thoragud
thorasig
icekeiko
totibald
valdivest
olafurjonsson









