Að skapa störf á Íslandi til framtíðar.

Sem aldrei fyrr þarf til að koma hugvit og dugur til atvinnusköpunar hér á landi, þar sem áhorf á smærri einingar þarf að koma til sögu.

Við þurfum og verðum að nýta landgæði okkur til hagsbóta og þá er nærtækt að horfa á ræktað land til landbúnaðar hér á landi sem um allt land er eins og eyðimörk eftir stefnu stærðarhagkvæmnisformúla fyrrum ráðstjórnarbúskaps.

Sjálf var ég alin upp við það sem bóndadóttir í sveit að gjöra svo vel að hirða ullarlagða á girðingum og hvarvetna til þess að nota og nýta, en rúmum tveimur áratugum síðar sagði faðir minn mér það að það tæki því ekki að selja ullina ekkert fengist fyrir hana.

Aldrei á ævinni hefi ég orðið eins undrandi og þá yfir sóun verðmæta.

Ég vona að gildismat nýtingar komi til sögu að nýju hér á landi, varðandi ull og land.

kv.Guðrún María.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Til hamingju með framboðið. Frjálslynda flokknum væri ekki alls varnað ef honum bæri gæfa til að velja þig sem formann.

Gestur Guðjónsson, 4.2.2009 kl. 16:21

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir það Gestur.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.2.2009 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband