Baráttan fyrir byggðunum.

Það er þjóðarhagur að byggja Ísland allt, en ekki aðeins hluta þess.

Til þess þarf aðkomu manna að atvinnu og meðan stjórnvöld þrjóskast enn við að hefja nauðsynlega endurskoðun fiskveiðikerfisskipulagsins hér við land, er áhorf á atvinnuuppbyggingu í formi orkunýtingar til atvinnuskapandi verkefna, eðlilega á dagskrá.

Offjölgun á höfuðborgarsvæði er afleiðing af misviturri ákvarðanatöku í atvinnustefnumótun í heild.

Því miður dettur manni það stundum í hug að engin heildarsýn hafi í raun verið á ferð í þessu efni hér á landi, nokkuð lengi og alls konar málamyndaaðgerðir þess efnis að færa störf út á land, af hálfu hins opinbera sé næstum hægt að telja á fingrum annarrar handar.

Ég er ekkert sátt við það sem skattgreiðandi til 32 ára að hluti grunnskólamannvirkja í landinu standi auður og tómur úti á landi, meðan skólar hér á Stór Reykjavíkursvæðinu anna vart nemendafjölda.

Sama má segja um heilsugæslumannvirki um allt land, og landsbyggðasjúkrahús, sem mitt skattfé gegnum árin hefur verið notað í að byggja upp, þar er sama sagan og á sér stað með nýtingu skólamannvirkja.

Heildaryfirsýn um atvinnustefnu einnar þjóðar á ríkisstjórn á hverjum tíma að hafa til staðar, hver svo sem við valdatauma situr.

Sú hin sama stefna þarf og verður að taka mið af því sem hefur verið gert og skrefum fram á veg í því efni.

 kv.gmaria.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Baraáttan fyrir byggðunum er fyrst og fremst að  fólk fái að ráða sér sjálft, samanber fólk í Vesturbygð.Það  á að ráða.

Sigurgeir Jónsson, 2.8.2008 kl. 04:24

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Kv.

Sigurgeir Jónsson, 2.8.2008 kl. 04:30

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það sama er með Húsavík. Og alla daga horfir fólk á Blönduósi Blöndu renna og orkan er flutt beint suður í Hvalfjörð.

Sigurgeir Jónsson, 2.8.2008 kl. 04:42

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Til þess að hægt sé að taka á þessu þarf Frjálslyndiflokkurinn að komast í ríkisstjórn.Kv.

Sigurgeir Jónsson, 2.8.2008 kl. 04:51

5 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

190.000 .í þorski ættu allir að geta sætt sig við..

Sigurgeir Jónsson, 2.8.2008 kl. 05:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband