Frjálslyndi flokkurinn hefur nú gagnrýnt skipan mála í sjávarútvegi í áratug.

Frjálslyndi flokkurinn einn flokka á Alþingi Íslendinga hefur gagnrýnt núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi frá stofnun flokksins, en hvorki Samfylking eða Vinstri Grænir hafa gert málefnum sjávarútvegs sérstaklega hátt undir höfði, fremur en Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur sem setið hafa meginhluta tímans í ríkisstjórn við skipulag kerfisins.

Ef til vill er ástæðu málefnafátæktar hinna flokkanna að finna í því atriði að hluti þingmanna þessarra flokka lögðu blessun sína yfir hið þjóðhagslega óhagkvæma skipulag sem lögleiðing hins frjálsa framsals aflaheimilda fól í sér með byggðaröskun og fjárumsýslu sem olli stórgróða örfárra með því að geta selt frá sér leyfi til að veiða fisk hér á landi.

Hin mikla fjárumsýsla sem þarna varð til hefur gert það að verkum að ýmis öfl láta einskis ófreistað að ráðast að Frjálslynda flokknum svo mest sem verða má og blása upp bál úr ágreiningi milli manna um einhver mál að virðist með það að markmiði að drepa á dreif þeim atriðum sem flokkurinn hefur gagnrýnt í íslenskum sjávarútvegi og verður að skrifast sem ein helstu stórnvaldsmistök hér á landi á síðustu öld, þ.e. lögleiðing framsals aflaheimilda millum útgerða.

Allt spurning um hvort almenningur í landinu fái séð " skóginn fyrir trjánum " í þessu ævintýrafjármálabraski sem hófst með þeim gjörningi að lögleiða framsal heimilda til veiða á Íslandsmiðum.

Þar hafa íslenskir fjölmiðlar ekki staðið sig í upplýstri umræðu um málið í heild.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Maður áttar sig ekki á þögn VG en ætli hún stafi ekki af því að Steingrímur Sigfússon tók þátt í að búa þetta skrímsli til sem komið er að fótum fram sem kallast kvótakerfið.

Sigurjón Þórðarson, 25.5.2008 kl. 13:48

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Hver er stefna Kristins H. Gunnarssonar í stjórnun fiskveiða.Hver er stefna Guðjóns A.Kristjánssonar í stjórnun fiskveiða.Getið þið sagt einhverjum það, ekki gera þeir það sjálfirHinsvegar hafa bæði Grétar Mar og Jón Magnússon sagt að kvótinn eigi að fara á uppboð hjá ríkinu.Það er ekki að leggja níður kvótakerfið.Og að halda því fram að það sé mannréttindabrot á sjómönnum ef t.d. stórfyrirtæki eins og Nesfiskur leigir til sín kvóta frá Samherja er rugl sem komið er frá einu mesta mannréttindabrotaríki heimsins Saudi Aarabíu.Á þessu rugli tekur þú mark Viðar.

Sigurgeir Jónsson, 25.5.2008 kl. 22:15

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ég satt að segja hélt Viðar,að þú hefðir aðra trú á þekkingu araba á Íslenskum sjávarútvegi og á Íslandi yfirleitt.

Sigurgeir Jónsson, 25.5.2008 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband