Agaleysi eins þjóðfélags.

Skrílslæti og fíflagangur virtist á ferð í dag í Ráðhúsinu svo mjög að manni fannst þar helst á ferð fólk undir einhverjum annarlegum áhrifum án þekkingar á stað og stund.

Ég trúi því ekki að stjórnmálamenn sem vilja láta taka sig alvarlega reyni að túlka þessi skrílslæti sem mótmæli, og breytir þar engu um hvort menn kunni að vera að koma eða fara í borgarstjórn í hinum ólikum flokkum sitt á hvað.

Skrílslæti sem slík skrifast fyrst og síðast sem heimska, sökum þess að tilgangurinn helgar ekki meðalið.

kv.gmaria. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæl. Hef bloggað um þessi skrílslæti nokkuð í dag. Jú Gurðrún, halda
mætti að við værum í sama flokkinum :)

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 25.1.2008 kl. 02:15

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þ.e.a.s hinum eina sanna ÞJÓÐLEGA ÍHALDSFLOKKI !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 25.1.2008 kl. 02:17

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já það segirðu satt Guðmundur sennilega erum við það nú inn við beinið.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.1.2008 kl. 02:18

4 identicon

Sæl Guðrún mín.

Nú erum við ekki allveg sammála en það á að vera í lagi hér á blogginu.Ég eins og þú er á móti Skrílslátum.En ég held að kröftug mótmæli á pöllum um það sem fólki ofbýður td. framganga fulltrúa borgarinnar,sé í lagi.'eg held að þetta komi til með að þróast út í þessa tegund mótmæla.Sér í lagi þegar þeir ganga fram af fólki . eins og mér persónulega finnst. Á blogginu mínu  er grein um Einræðisherra.Og skýrir hún svolítið það sem er að gerast og mér finnst það Gerræði.

En samt sem áður við þurfum ekki alltaf að vera sammála.

Góðar stundir. 

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 02:36

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Þórarinn.

Nei það væri nú óeðlilegt að menn væru alltaf sammála um allt.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.1.2008 kl. 02:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband