Verða núverandi ríkisstjórnarflokkar þess umkomnir að endurskoða aðferðafræði við fiskveiðistjórnun ?

Það er alveg sama hvernig á það er litið , endurskoðun núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis hvoru tveggja þarf og verður að koma til sögu á þessum tímapunkti hér á landi. Ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar hefur brugðist til uppbyggingar á verðmesta fiskistofninum í tvo áratugi, því miður, þannig er það, hvort sem skortur á vitund stofnunarinnar um virkni kerfisins eða óskilvirkni er ástæðan eða aðrir þættir,  þá ber sitjandi stjórnvöldum að endurskoða þá aðferðafræði sem ekki hefur skilað sér fyrir land og þjóð allan þennan tíma. Hvorki hvað varðar sameign og sameiginlega nýtingu þegnanna af auðlind sinni né heldur afrakstur til komandi kynslóða með vexti og viðhaldi fiskistofna og nýtingu í sátt við lífríkið á hafsbotni sjávar við Ísland. Skammtímahagsmunir einstakra útgerðarfyrirtækja sem nú starfa í kerfinu eru hjóm eitt miðað við hagsmuni þá sem standa þarf vörð um nú um stundir og felast í því að Ísland sé ábyrgt sem framleiðandi matarforða úr hafi og útflutningsaðili sjávarafurða sem standast alþjóðlegan samanburð framleiðslu sem hefur með sjálfbærni að gera hvað varðar störf þegna við atvinnuveginn og umgengni við lífríkið með uppbyggingu að leiðarljósi.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Það verður að gera eitthvað, óbreytt staða er ekki kostur, en hver verður niðurstaðan, það er aftur vandvitað.

Ester Sveinbjarnardóttir, 22.6.2007 kl. 02:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband