Ríkið hefur ekki efni á að reka eigin þjónustu með sómasamlegum hætti.

Það skiptir litlu máli hvort litið er á stjórnsýslustig ríkis eða sveitarfélaga, skortur á fjármagni og sífelld barátta við að halda uppi þjónustustigi hinna ýmissu stofnanna í opinberum rekstri er nær alls staðar sú hin sama birtingamynd er blasir við. Ráðamenn guma sig af svo og svo miklum upphæðum í heildarútgjöldum og henda fram aukningu í prósentum talið milli ára en slíkt segir litla sögu því fólki fjölgar og eðli máls samkvæmt aukast útgjöld í réttu hlutfalli þess hins arna í prósentum talið. Framkvæmdasjóður aldraðra og það fjármagn sem til hans er varið hefur ekki verið nýtt til þess að byggja upp byggingar fyrir öldrunarþjónustu heldur verið notað í rekstur, sem mér best vitanlega var aldrei tilgangurinn og landsmenn því í raun blekktir til þess að greiða gjald af sköttum i fjöldamörg ár án þess að fjármagnið væri nýtt í þann lögbundna tilgang sem til var ætlað. Slíkt hefi vakið meiri athygli í öðrum löndum en hér á Íslandi að mál væru með því móti og það er skömm að slíkt skuli ekki dregið fram, ritað um og rætt sem algjört ábyrgðarleysi þeirra er sinna skyldu hinu lögboðna hlutverki í þessu efni og landsmenn hafa greitt gjald til í áraraðir í góðri meiningu.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Eggertsson

Á sama tíma og einhleypt fólk í fullu fjöri og hjón á besta aldri með tvö börn eyða í neyslu 200.000 kr. á mánuð hvert þegar þau eru búinn að greiða af launum sínum tekjuskatt til ríkisins, er öryrkjum og öldruðum skammtaður "skítur úr hnefa", 110.000 kr. til 150.000 kr. og þá á eftir að draga tekjuskattinn frá.  Það er alveg undarlegt hversu mikið fylgi sá flokkur hefur sem er ábyrgur fyrir þessu, -Sjálfstæðisflokkurinn!

Kjartan Eggertsson, 20.4.2007 kl. 22:15

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Kjartan.

Mæltu manna heilastur.

Þessir herramenn hafa setið uppi í Fílabeinsturninum í áraraðir svo telur í tugum en engu umbreytt til handa alþýðu manna meðan örfáum hefur verið fært hendur vald til þess að braska með óveiddan fisk úr sjó.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 21.4.2007 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband