Hvernig væri að fá tölur um laun upp á borðið í þessu efni ?

Hvaða tölulegar upphæðir eru hjúkrunarfræðingar að fara fram á ?

Er aukið vinnuframlag skiptimynt í því efni líkt og svo oft áður svo ekki sé minnst á stjórnunarnám allra handa sem svo mjög var í tisku hér um tíma að koma inn í samninga þessa ?

 Hvaða prósentutölulega hækkun launa eru hjúkrunarfræðingar að fara fram á og hve mikla prósentutölulega hækkun er ríkið að bjóða ?

 

kv.Guðrún María. 

 

 


mbl.is „Hvergi nærri nóg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð spurning Guðrún María .... er þetta bara réttindamál eða einfaldlega græðgi?

Ekki ein einasta manneskja má spyrja um það ....

Egill Þór Sigurgeirsson (IP-tala skráð) 5.2.2013 kl. 00:40

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hér er hugmynd.

Hvernig væri að hjúkrunarfræðingar og sjúkrahúsin kæmu sér saman um hversu mikil munur atti að vera á læknalaunum og hjúkrunarfræðingalaunum og setja það í samninga.

Þannig að ef læknar fá launa hækkun þá fá hjúkrnarfræðingar launa hækkun automatíkst. Með svona samninga þurfa hjúkrunarfræðingar aldrei að hóta sjúkrahúsunum með uppsögnum eða verkfalli.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 5.2.2013 kl. 00:51

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælir Egill og Jóhann.

Ég tel það nauðsynlega spurningu í kjarbaráttu hvers konar að vita hvaða kröfur viðkomandi stéttir gera í sinni baráttu og hvað ber á milli í samningum.

Já Jóhann slíkt væri sannarlega ekki fráleitt.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 5.2.2013 kl. 00:57

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Já Guðrún en einhverra hluta vegna að þá eru samningar sem kosið er um einkamál þeirra sem hafa kosningarétt.

Eina leiðin til að finna út hvað var í samningnum er að ef einhver sem hefur rétt á að vita hvað er í samningnum lekur upplýsingunum til utanaðkomandi.

Svona er þetta Íslandi, BNA og öðrum löndum.

Þessi hugmynd mín er eiginlega stolin sem ég setti fram í athugasemd 2.

Það er flugfélag hér í BNA sem er með þetta að þegar hæst greiðandi flugfélag hækkar laun og kjör sinna flugmanna, þá fá flugmenn þessa flugfélags samsvarandi kaup og kjör hækkun. Þetta virkar, enda hafa þessir flugmenn ekki farið í verkfall eða hótað verkfalli síðan þetta ákvæði ver sett í samninginn.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 5.2.2013 kl. 01:27

5 identicon

Sæl Guðrún, (og Egill Þór)

Ég veit ekki betur en að það hafi komið fyllilega fram í nokkrum fréttum og tilkynningum bæði á mbl.is og fleiri miðlum hvað hjúkrunarfræðingar eru að fara fram á í hækkun, auk þess hvað þeim hefur verið boðið hingað til.

Hjúkrunarfræðingar fara fram á að fá laun á við aðra háskólamenntaða ríkisstarfsmenn, sem að eru með 476 þúsund krónur að meðaltali í dagvinnulaun á meðan meðal dagvinnulaun hjúkrunarfræðings eru 381 þúsund krónur.

Í síðasta boði ríkissins voru ákvarðaðar 400 milljónir króna í þessa hækkun sem að áttu svo að dreifast á alla hjúkrunarfræðinga LSH. Það þýðir 4,8% launahækkun á hvern einstakling, en við það myndu meðallaunin varla hækka yfir 400 þúsund krónur og því sést augljóslega að það er ekki nálægt því nóg til þess að leiðrétta eitt eða neitt

Tölurnar fékk ég upp úr eftirfarandi fréttum:

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/01/29/veita_engan_hopafslatt/
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/02/01/thydir_4_8_prosent_launahaekkun/

En þú getur lesið meira um þetta á eftirfarandi síðu, ef þú hefur einhvern áhuga á því að leita þér að þessum upplýsingum:

http://www.mbl.is/frettir/knippi/3026/

Jón Ingi Jónsson (IP-tala skráð) 5.2.2013 kl. 01:28

6 identicon

Alveg rétt spurt Gunna M. Fyrir liggur að meðal dagvinnulaun hjúkrunarfræðinga eru 381.000 kr á mánuði. Tæp 27% heildarlauna hjúkrunarfræðinga eru óhjákvæmilega vegna annarra þátta en dagvinnu, það er yfirvinnu, álagsgreiðslna vegna kvöld-, nætur-, og helgarvinnu, og annarra launa., skv. félagi þeirra. Heildarlaun hjúkrunarfræðinga reiknast mér þá um 523.000 kr á mánuði að meðaltali, fyrir skatta. Dæmi svo hver fyrir sig.

Almenningur (IP-tala skráð) 5.2.2013 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband