Ríkisstjórnin er skipstjórinn á skipinu Björn Valur.

Það er alveg hreint stórkostlegt að hlýða á stjórnarþingmenn núverandi, berja lóminn yfir umræðum á þinginu af hálfu stjórnarandstöðunnar um mál öll.

Raunin er sú að þeir hinir sömu sem þennan málflutning iðka, gætu á næsta kjörtímabili verið komnir í stjórnarandstöðu og spurning hvort þessi barlómur yrði þá ekki ögn hjákátlegur.

kv.Guðrún María.


mbl.is Vinnulag sem ekki væri tekið gilt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já segðu og eitt er alveg víst að Stjórnarsamstaðan sínir fordæmið núna á því sem þeir munu fá...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 2.6.2012 kl. 09:28

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

"Skipstjórinn" forsætisráðherrann: Jóhanna Sigurðardóttir, er lögst í ferðalög, og þá er þjóðarskútan skipstjóralaus. Þannig verklag yrði ekki liðið á öðrum skútum. Þetta minnir á sumarið 2008.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.6.2012 kl. 10:23

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælar Ingibjörg og Anna og takk fyrir innlitið, já verklagið er sérstakt.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.6.2012 kl. 00:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband