Batnandi mönnum er best að lifa.

Óhjákvæmilega er það nokkuð sérstök upplifun að sjá fulltrúa núverandi ríkissstjórnarflokka sem töldu okkur trú um það samþykkja yfir okkur samningsklafa sem núverandi stjórn hafði leitt í lög, tala máli þjóðarinnar erlendis, nú, algjörlega á öndverðum meiði, við eigin fyrri afstöðu í málinu.

Hafi einhver efast um að Ragnar Reykás, endurspegli ýmislegt í pólítik, þá hygg ég að efasemdarmönnum sem slíkum fækki.

kv.Guðrún María.


mbl.is Leggja ekki stein í götu okkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Hver er trúverðugleiki matsfyrirtækja ef þau segja fyrir Icesave, að allt verði metið niður í kjallara ef þjóðin segir nei, en ákveða svo eftir spjall við fulltrúa stjórnvalda að meta ekki allt niður í kjallara, heldur að fresta því?

Var matsfyrirtækjunum bent á einhverjar efnahagsforsendur sem þeim yfirsást, þegar þau gáfu út yfirlýsingu um lægra mat?  Eða er þetta ,,pólitískt" samkomulag stjórnvalda við matsfyrirtækin?

Var yfirlýsingin um lægra mat pólitísk eða byggð á efnahagslegum forsendum?

Kristinn Karl Brynjarsson, 18.4.2011 kl. 01:03

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Kristinn Karl.

Blessaður vertu þetta er allt markaðsbissness eins og forseti vor benti réttilega á, og sýnilegt hefur verið til handa þeim sem vilja vita.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.4.2011 kl. 01:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband