Framsóknarflokkurinn á ekkert erindi í núverandi ríkisstjórn.

Ég er ósammála Siv Friðleifsdóttur í þessu efni varðandi það atriði að Framsóknarflokkurinn eigi erindi í núverandi ríkisstjórn.

Á nýafstöðnu flokksþingi var samþykkt ályktun þess efnis Framsóknarflokkurinn teldi hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins. Þar kemur fram mjög skýr afstaða flokksmanna.

Þetta viðtal sem vitnað er í sýnist mér sama efnis og birtist í blaðinu Hafnfirðingi, við Siv, sem kom út núna fyrir helgina.

Siv Friðleifsdóttir er dugnaðarforkur í pólítik og ég trúi því ekki að hún muni gera áhuga sinn á aðild að Evrópusambandinu sem sérstakt ágreiningsefni við samflokksmenn sína, enda litið eðlilegra en að skiptar skoðanir séu innan flokka um mál sem slíkt.

kv.Guðrún María.


mbl.is Frjálslyndur hópur finnur sig ekki í flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Siv sér um sinn afturenda annað ekki .

Vilhjálmur Stefánsson, 18.4.2011 kl. 00:22

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Vilhjálmur.

Ekki get ég verið sammála því viðhorfi þínu, því virðing min fyrir Siv Friðleifsdóttur fyrst sem sveitarstjórnarmanni á Seltjarnarnesi og síðar þingmanni og ráðherra hefur alla tíð verið fyrir hendi, þótt ég sé nýgengin til liðs við Framsóknarflokkinn.

Þótt ég sé ósammála henni varðandi þáttöku flokksins nú um rikisstjórnarsamstarf með sitjandi flokkum, þá veit ég að hún stendur vörð um mörg samfélagsmál þar sem þingreynsla hennar nýtist vel.

kv.Guðrún María.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.4.2011 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband