Sama og " vistvænn landbúnaður " eða hvað ?

Núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi inniheldur sjálfkrafa sóun á verðmætum í formi kvóta til veiða, því kvótakerfi hafa þann fylgifisk að hvetja til þess að hirða aðeins verðmesta aflann og henda hinu.

Mér er það því mjög til efs að slík kerfi geti yfir höfuð talist umhverfisvæn varðandi vottun á alþjóðavettvangi og það atriði að búa til eigin vottun á eigin aðferðir er ekki nógu trúverðugt, því miður.

Vélarstærð fiskiskiptaflotans hér á landi og olíueyðsla í þvi sambandi við sókn á fiskimið er eitthvað sem ætti að vera inni í þessari vottun og þar efa ég mjög að við stöndumst viðmið, sökum þess að markvisst hefur sú stefna að fækka og stækka einingar í sjávarútvegi líkt og landbúnaði innihaldið tól og tæki sem eyða meiri olíu, þegar aldrei hefur verið hærra verð á slíku.

Skortur á rannsóknum á umgengni um lifríki sjávar á Íslandsmiðum með stórvirkum botnveiðarfærum er ekki fyrir hendi enn þann dag i dag og því ótrúlegt að slíkar rannsóknir skuli ekki liggja fyrir til grundvallar vottun sem slíkri.

kv.Guðrún María.


mbl.is Ábyrgar þorskveiðar staðfestar með vottun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er óneitanlega gott að fá slíka vottun, jafnvel þó við vitum að hún er ekki rétt. Mikilvægið liggur fyrst og fremst í sölu þessara afurða erlendis.

Betra væri þó ef þetta væri satt og rétt, að hér væri stundaðar ábyrgar veiðar.

Það vita allir að landbúnaður sem stundaður á verksmiðju grundvelli gæti aldrei fengið slíka vottun. Því er spurningamerki hvernig hægt er að votta veiðar sem eru stundaðar á sama grundvelli.

Ef um væri að ræða veiðar smábáta, þar sem afli kemur á land strax og unnin ferskur, þá gæti maður keypt þetta.

Gunnar Heiðarsson, 16.12.2010 kl. 08:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband