Félagsþjónusta sveitarfélaga, og stuðningur við fjölskyldur þessa lands.

Hið svokallaða velferðarkerfi þessa lands, og lagaumgjörð um þá hina sömu þjónustu lítur vel út á blaði en hver er reyndin þegar kemur að því að skóinn kreppir, varðandi ungt fólk með börn sem hefur til dæmis fest kaup á húsnæði áður en hrunið kom til hér á landi  og situr í skuldafeni hækkunar lána ?

Jú ef svo vill til að fjölskylda hafi tekjur yfir framfærslumörkum fyrir skatta, þá tekur hið opinbera ekki tillit til þess að skattarnir kunni hugsanlega að setja fólk í þá stöðu að verða undir slíkum mörkum eftir skatta, þannig er regluverk hins opinbera í þessu efni.

Með öðrum orðum, málamyndasýndarmennska um velferð sem ekki tekur mið af raunverulegri greiðslubyrði einstaklinga eftir skattgreiðslur til hins opinbera.

Það er ekki við fólkið að sakast sem vinnur sem félagsráðgjafar hjá sveitarfélögum og fær engu ráðið um regluverkið, heldur þá er setja þessar heimskulegu reglur sem ekki eiga stoð í raunveruleika málanna sem eru kjörnir fulltrúar beggja stjórnsýslustiga ríkis og sveitarfélaga í landinu.

Fjarlægð ráðamanna frá hinum raunverulegu vandamálum er alger.

kv.Guðrún María.

 

 

 

 


mbl.is Rætt um skuldavanda barnafólks á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

Fyrigefðu,Guðrún María,eftir því sem ég les meira eftir þig ?????.

Af hverju hafa þessir sem mest hafa stolið barist fyrir Sjálfstæðisflokkinn,er það ekki fyrir það að þá gætu þeir stolið í friði ef hann væri við völd ?

Ég held þótt öll þín fjölskilda væri tekinn af lífi af Sjálfstæðisflokknum,þú myndir verja það.kv

þorvaldur Hermannsson, 26.3.2010 kl. 02:11

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Þorvaldur.

Vandi landsins snýst ekki um fylgismenn stjórnmálaflokka og dásömun á þeim er sitja við stjórnvölinn hverju sinni heldur aðgerðir um mál hverju sinni, alveg nákvæmlega sama hver er þar við völd.

Það snýst um að taka málefni umfram stjórnmálaflokka, og vinna að þeim í stað þess að henda fýlubombum sitt á hvað í skoðanir sem mönnum finnst ekki hæfa sínum flokkspólítísku básum.

Stórkostleg barátta Samfylkingar gegn Sjálfstæðisflokki kemur mér bara ekki nokkurn hlut við enda aldrei verið í þeim hinum sama flokki, og sá fíflagangur er fáránlegur i allri sinni mynd, þ.e þetta smábarnalega skítkast varðandi það að reyna að kenna öðrum um, án þess að gera eitthvað til betrumbóta sjálfir.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 26.3.2010 kl. 02:28

3 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

Bíddu við, kenna öðrum um,hefur þú ekki verið að rakka núverandi stjórnvöld niður,sem eru að reina að bjarga því sem bjargar verður.

Af hverju villt þú fá þá aftur til valda þá sem öllu stálu? svar óskast.

Ég spyr aftur af hverju vilt þú fá þá fólk aftur,ekki reina að þvæla eitthvað, færðu rök fyrir því máli, af hverju þú vilt fá þetta fólk aftur sem öllu stálu,ekki tala um að núverandi stjórnvöl standi sig ekki nógu vel,sem þaug hafa örugglega ekki gert,Af hverju viltu Davíð aftur (sem henti 400 miljörðum út úr seðlabankanum)já og Geir   og Hannes Hólmstein ,Kjartan Gunnarsson, Þorgerði Katrínu kululánadrottningu,miðað við fyrri blogg þín vilt þú þetta fólk aftur,ég spyr af hverju ? Ekki þvæla að þetta sé ekki rétt hjá mér,ég hef fylgst með bloggunum þínum

þorvaldur Hermannsson, 26.3.2010 kl. 04:53

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll aftur Þorvaldur.

Ég legg til að þú leggir á þig lestur blogga minna lengur en þessi ríkisstjórn hefur setið og þá munt þú komast að því að ég gagnrýni stjórnvöld á hverjum tíma, burtséð frá því hver þar situr.

Núverandi ríkisstjórn er ekkert betri en sú hin fyrri, raunin er sú að þær eru eins.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 28.3.2010 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband