Ég gæti sagt svo margt og mikið......

Ég gæti sagt svo margt og mikið

mælt í hljóði, hafið raust.

Þótt í burtu þyrlist rykið,

það kemur aftur endalaust.

 

Minni vinnu, minni skatta,

meiri tíma til að sjá,

hvernig megi loksins fatta,

að þurfa ekki að borga þá.

 

Alveg sama á hvern veginn,

okkar lögum verður breytt,

alltaf mun það saga segin,

sumir borga aldrei neitt.

 

Meðan stjórnvöld reikna og reikna,

reyna að finna hagkvæmni,

situr Páll með Pétri að teikna,

notað tap með nákvæmni.

 

Því kanski er best að tapa, tapa,

tapa öllu ef þörf er á.

Eignast með því einu að hrapa,

auð sem enginn fær að sjá. 

 

 

( gamlar vísur úr skúffunni síðan 1995, er ég bjó á Nesinu og eina sem mér dettur í hug í sambandi við þessa frétt. )

kv.Guðrún María.


mbl.is Arion fær tilboð um 1998
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Skemmtilegar vísur og eiga vel við nú eins og þá reikna ég með. Það er eins með rykið hjá mér. Það kemur alltaf aftur og aftur.  kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 24.11.2009 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband