Iðnaðarráðherra Samfylkingar skýlir sér bak við Evrópureglugerðir, um álver.

Hér er fyrsta dæmið um það atriði að núverandi ríkisstjórn reynir að draga fram EES samninga og reglugerðir til þess að skýla sér bak við varðandi ákvðarðanir um álversframkvæmdir.

 úr fréttinni.

"Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að Alþingi hafi í vor sett lög sem hafi heimilað iðnaðarráðherra að gera fjárfestingarsamning við Norðurál en eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hafi þurft að staðfesta lögmæti samningsins.

Stofnunin úrskurðaði 23. júlí sl. að fjárfestingarsamningurinn stæðist EES reglur.  Meðal annars skoðaði stofnunin orkusölusamninga Norðuráls við Orkuveitu Reykjavíkur og HS orku og tekur sértaklega fram að arðsemi orkusamninga sé eðlileg og ekki um neinar niðurgreiðslur á orkuverði að ræða."

Hér er gerð tilraun til þess að gera ábyrgð ráðherra á stjórnarathöfnum sem minnsta, með tilvitnun

í EES samninga, og afar hjákátlegt að mínu viti.

kv.Guðrún Maria.


mbl.is Fjárfestingarsamningur undirritaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ef ég man rétt þá voru það andstæðingar þessara samninga sem heimtuðu að þessar eftirlitsstofnanir gerðu athugun á þessu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.8.2009 kl. 04:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband