Hér talar Samfylkingarmaður, sem mærir nýja ríkisstjórn, launþegar hafa ekki verið spurðir.

Á stundum mætti halda að menn héldu að fólk væri fífl, og menn geti bara hoppað af einu prikinu á annað hér á landi, við það að rúlla ákveðnum áherslum flokka yfir allt og alla eins og þeim dettur í hug.

Hér talar fyrrum frambjóðandi til embætta í Samfylkingunni annars rikisstjórnarflokksins og mærir nýja ríkisstjórn, sem trúverðuga án þess þó að plaggið hafi verið borið fyrir þá umbjóðendur sem sá hinn sami starfar fyrir, launþega í landinu.

Því til viðbótar kemur þetta.

"  Þá fagna ég því að nú er aðild að Evrópusambandinu loksins komin á dagskrá. ASÍ hefur lagt áherslu á það sem mikilvægan þátt í aðgerðaáætlun, þannig megi ná trúverðugleika inn á okkar fjármálamarkaði og í gegnum það, minnka þrýsting á krónuna,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. "

Hvar og hvenær var þessi afstaða borin til atkvæða meðal launþegafélaganna ?

Samtök atvinnulífsins gáfu út sams konar yfirlýsingar en urðu frá að hverfa þegar könnun var gerð meðal félagsmanna sem ekki voru sammála stjórninni.

Vegir forsjárhyggjunnar eru enn órannsakanlegir.

kv.Guðrún María.


mbl.is Trúverðugt plagg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Ég trúi því að þú vitir að verkalýðshreyfingin er ein af meginstoðum í baklandi Samfylkingarinnar. Það er ekkert óeðlilegt við það. Ekki frekar en að fulltrúar atvinnulífs og útgerðar hafa lengi verið áberandi í Sjálfstæðisflokknum.

Þú ert sjálfsag von því að helsta bakland þíns flokks sé einhver fámennur hópur rasista?

Gunnlaugur B Ólafsson, 11.5.2009 kl. 00:28

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Algörlega ósammála þér Gunnlaugur, það er ekkert gefið við það að launþegar allir undirgangist eitt stykki stjórnmálaflokk við það að eitt að vinna sína vinnu á vinnumarkaði. Það sem hreyfingin hefur leyft sér i þessu sambandi er skammarlegt hneyksli sem fyrir löngu síðan hefði átt að taka fastari tökum í okkar samfélagi.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 11.5.2009 kl. 00:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband