Kvótakerfið íslenzka er uppskriftin að bankahruninu Einar Kristinn.

Sjávarútvegsráðherra er enn við sama heygarðshornið að sjá má og reynir að halda því fram að þjóðir erlendis geti lært mikið af Íslendingum, hvað varðar fiskveiðstjórnun.

Þvílík firra sem hér kemur fram í pistli ráðherrans.

 "Evrópumenn geta lært mikið af íslenskri fiskveiðistjórnun. Fiskveiðistjórnunarkerfi þar sem grundvöllurinn er einstaklingsbundinn framseljanlegur fiskveiðiréttur, er aðalatriðið "

Raunin er sú að uppskriftin að bankahruninu íslenska liggur í verslun með óveiddan fisk á þurru landi sem fór vægast sagt úr böndunum og sneri einu þjóðfélagi á annan endann, alveg sama hvernig á það er litið.

Það fer ráðherra ekki vel að reyna að halda öðru fram og eins og að bera sól í gluggalausann kofan líkt og Bakkabræður gerðu forðum daga.

kv.Guðrún María.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nilli kom með ágætis kenningu um dugleysi og aðgerðarleysi Einars, sjá hér.

Jóhann Elíasson, 6.1.2009 kl. 08:20

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæl Guðrún. Gaman væri að heyra álit Einars, fyrst honum finnst
þetta fiskiveiðistjórnunarkerfi svona frábært með framseljanlegum
kvóta, hvort hugur hans breytist til þess, ákveði ríkisstjórnin sem
hann situr í, að sækja um aðild Íslands að ESB. Því hann hefur
einmitt varað mjög við því að sæki Ísland um ESB gæti hinn fram-
seljanlegi kvóti á Íslandsmiðum með tíð og tíma horfið  úr landi.
Flott fiskveiðastjórnunarkerfi það , eða hirr þó heldur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 6.1.2009 kl. 20:51

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Átti að vera, ,,eða hitt þó heldur"

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 6.1.2009 kl. 20:53

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Allir þingmenn Frjálslynda flokksins hafa lýst því yfir að þeir vilji að verslað verði með kvótann og það allan.En þeir vilja að ríkið versli með hann.Þeir hafa talað um að að hafa jafnvel á honum fast gjald og síðan verði honum úthlutað til klíkubræðra.Reyndar hefur Jón Magnússon talað um að hann verði að fara á uppboð ef ríkið versli mað hann.Það er vissulega rétt ,annrs er verið að brjóta jafnræðisreglu.Sjómannasamtökin í landinu styðja ekkert af þessum tillögum Frjálslyndaflokksins.

Sigurgeir Jónsson, 6.1.2009 kl. 21:14

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælir herramenn.

Þetta er náttúrulega einn blekkingaleikur sem menn ætla að hanga á endalaust uns komið er á bólakaf.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.1.2009 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband