Frjálslyndi flokkurinn vill sjá Ísland upp úr hjólförum stjórnvaldsmistaka undanfarna áratugi.

Frjálslyndi flokkurinn á fjóra menn á Alþingi Íslendinga sem hafa sameinast um það að vinna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem enn er undirrót þess hve landsbyggðin á í vök að verjast gagnvart allt of hraðri uppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu.

Þar stendur ekki steinn yfir steini í upphaflegum markmiðum og tilgangi kerfisfyrirkomulagsins, eftir tvo áratugi og það er óásættanlegt.

Þeir hafa einnig sameinast um það atriði að berjast fyrir afnámi verðtryggingar fjárskuldbindinga sem er gamall púki af fjósbitanum sem aldrei átti að fylgja meðferðis inn í það efnahagsumhverfi er stjórnvöld skópu.

Hækkun skattleysismarka var sett á oddinn fyrir síðustu kosningar, sem nauðsyn til þess að leggja jafnar byrðar á herðar þegnanna í því efni, þarfnast enn verulegrar endurskoðunar við.

Fjölmörg mál liggja fyrir þingi sem hefst nú í september og þar munu þingmenn flokksins koma af fullum þunga inn í þau mál sem þar eru fyrir dyrum.

kv.gmaria.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Áddni

Sæl Guðrún!

Þetta er fögurð orð og í tíma töluð, en því miður er það nú líka lenskan í flokki þínum að tala og tala. Ekki hef ég séð nokkurn skapaðan hlut sem að segir mér að verk séu á leiðinni. Bara fleiri orð...

Ef að ykkur væri virkilega alvara með öllum þessum orðum, væruð þið að berjast og þyrla upp ryki við að koma ykkar málum á framfæri.

Í staðinn eruð þið bara að spila pólitík...eins og pólitíkusar!

Áddni, 22.8.2008 kl. 10:48

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Það er fróðlegt að lesa þetta, vissulega hafa þingmenn Frjálslyndra fylgt eftir góðum málefnum, og dansað í takt.

Ester Sveinbjarnardóttir, 22.8.2008 kl. 22:19

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl GMaría. Fínn pistill hjá þér. Ég hef líka fulla trú á okkar mönnum og óhætt að segja að þeir hafa haft nóg til málanna að leggja á þessu þingi sem fer að ljúka. Orð eru til alls fyrst Áddni og óþarfi að ætlast til að menn sem eru í minnihluta geti gert mikið meira en leggja fram góð mál og fylgja þeim eftir í orðræðu. Þess vegna skiptir svo miklu máli hverjir hafa völdin. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 22.8.2008 kl. 23:43

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl öll.

Mestu stjórnmálalegu mistök síðustu aldar er lögleiðing framsals aflaheimilda á Íslandsmiðum og allt það óhagkvæma brask sem eitt þjóðfélag hefur mátt upplifa frá þeim tíma.

Það þarf sterk bein til að standa saman um gagnrýni á það hið sama en það höfum við í Frjálslynda flokknum gert og munum gera áfram.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.8.2008 kl. 02:11

5 Smámynd: Áddni

Ég er ekki sammála þér Kolbrún að ekki sé hægt að ætlast til mikils af minnihluta. Þvert á móti ætti maður að ætlast til mikils af minnihluta, því þeirra er baráttan að komast í meirihluta.

Ef að metnaður frjálslynda flokksins væri að komast í meirihluta og virkilega gera gagn (því mikið af þeim málefnum sem þeir "segjast" berjast fyrir eru göfug) þá þýðir ekki að mæta andstæðingnum og taka slaginn á hans forsendum. Það þarf að hugsa út fyrir rammann og nota nýjar leiðir.

Greinilegt er að leikreglurnar eru að valda því að ekkert breytist.

Er kvótakerfið eitthvað að breytast? Nei.

Er verðtryggingin á útleið? Nei.

Eru lágmarkskjör að batna? Nei.

Er heilbrigðiskerfið eitthvað að batna? Nei.

Þú segir í athugasemd þinni að orð séu til alls fyrst. Það er nú bara þannig að allir geta talað. Það geta ekki allir framkvæmt.

Áddni, 23.8.2008 kl. 10:52

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæl Guðrún.

Mest er ég hissa á ESB-sinnum varðndi frjálst framsal aflaheimilda á
Íslndsmiðum. Eru þeim virkilega sama að kvótinn á Íslandsmiðum
fari á uppboð á markaðstorgi ESB gangi Ísland þar inn? Gera þeir
sér ekki grein  fyrir því  að meðan kvótinn á Íslandsmiðum er framseljanlegur kemur aðild Íslands aldrei til greina. Neima ESB-
sinnum er svo gjörsamlega sama um okkar helstu auðlind, okkar
íslenzku fiskimið!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.8.2008 kl. 17:21

7 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Áddni. Ég sagði "óþarfi að ætlast til að menn sem eru í minnihluta geti gert mikið meira en leggja fram góð mál og fylgja þeim eftir í orðræðu. Þess vegna skiptir svo miklu máli hverjir hafa völdin.

Ég er ekki að segja að menn hafi ekki væntingar til minnihluta og að hann sé gangslaus heldur að það þarf meirihluta atkvæða til að ná breytingum í gegn á þingi. Það er staðreynd og ekkert hægt að vera ósammála því. þess vegna þarf að kjósa fólkið sem er að leggja til breytingar sem fólk vill sjá verða að veruleika. Leikreglurnar eru jú lýðræðið  eins og þú væntanlega veist.  Á síðasta þingi var ein tillaga sem ég veit um að komst í gegn sem kom frá minnihluta ( Valdimar Leo) og það var víst hálfgert slys. ;) Þú talar eins og það sé hægt að taka völdin með ólýðræðislegum hætti. Ég er hlynnt lýðræði og þessvegna er ég í FF. Guðmundur ég er alveg sammála þér um að halda í okkar auðlindir og stýra þeim sjálf. kveðja Kolla. 

Kolbrún Stefánsdóttir, 23.8.2008 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband