Stjórnmálin snúast um fólkið í landinu.

Núverandi ríkisstjórnarflokkar virðast samsama sig í rabb rabb pólítikinni innan ríkisstjórnarinnar en þjóðin fær ekki mikið að heyra eða sjá af stefnuföstum formönnum sem tala kjark og trú í landsmenn á tímum þrenginga.

Andvaraleysi á slikum tímum er alvarlegt, jafn alvarlegt og deilur og erjur alls konar um algjör aukaatriði svo sem keisarans skegg, sem landsmenn hafa fengið nóg af úr höfuðborg landsins, það sem af er kjörtímabili sveitarstjórnarstigsins.

Stjórnmálamenn eru kjörnir fulltrúar fólksins í landinu og þeim ber að tala sig saman um úrlausnir og sætta sjónarmið til framgangs starfa sinna.

Lýðræðið er fínt tæki ef það er notað og nýtt til þess arna, en jafn slæmt ef úrlausnir í stjórnmálum enda sem umfjöllunarefni fjölmiðla, án fenginnar niðurstöðu um viðfangsefni hvers konar.

Menn geta mælt skegglengd sína þegar lýðræðisleg niðurstaða er fengin um hvort sjónarmið þeirra hafi verið ofan á eða undir, hvar sem er og hver sem á í hlut, flokkar eða menn innan þeirra.

Ríkisstjórn í einu landi á að geta talað einu máli ekki mörgum sitt á hvað, og þar er stjórnarsáttmáli án efa ágætur til að fylgja.

kv.gmaria.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Nei! Stjórnmálamenn virðast alls ekki vita fyrir hvern þeir eru að starfa. Að sjálfsögðu eru þeir fólkið, sem meirihlutinn kaus til að stjórna í þessu landi. Þeir virðast margir vera komir ofan í sandinn með Geir. Við verðum að vona að þeir fari að taka til einhverra ráða, því annars veit maður ekki hvernig hlutirnir koma til með að ganga upp. Staðan er því miður víða slæm.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 21.8.2008 kl. 08:25

2 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sæl, maður hristir nú bara höfuðið.

kkv.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 21.8.2008 kl. 18:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband