Við getum veitt meira af þorski á Íslandsmiðum og eigum að gera það nú eins og skot.

Hin misviturlega fiskveiðistjórn hér við land sem nú hefur leitt til skerðingar veiðiheimilda á þorski, með það að markmiði að byggja upp stofninn, með friðun hans leiðir til þess að honum hnignar, sökum þess að hann þarfnast grisjunar, þ.e. það þarf að veiða elsta fiskinn, líkt og eldra búfénaði er slátrað í landbúnaði til endurnýjunar.

Það er hin líffræðilega fiskveiðistjórn sem frændur okkar Færeyingar þekkja og hafa notað og nýtt sér til hagsbóta lengi.

Við eigum hins vegar að friða miðin frá loðnuveiðum sem hafa verið umfram það sem góðu hófi gegnir en gott hóf er afstætt þegar kemur að skipan mála í núverandi kerfisfyrirkomulagi kvótakerfis sjávarútvegs á Íslandi sem stjórnvöld sjá sér enn ekki hag í að hefja endurskoðun á en þörfin er brýn til þess hins arna.

kv.gmaria.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Aðferðafræði HAFRÓ hefur fengið aldarfjórðung til þess að sýna fram á að hún er alröng, þetta sýnir okkur fram á það svo ekki verður um villst að það eru STERKIR hagsmunaaðilar í spilinu og að vernun fiskistofna við landið er orðið aukaatriði.  Aðalatriðið virðist vera að viðhalda kvótakerfinu sama hvað það kostar og hversu vitlaust sem það er.

Jóhann Elíasson, 25.6.2008 kl. 08:06

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Alveg sammála þér Guðrún.

Er alltaf að nálgast sjónarmið ykkar Frjálslyndra í sjávarútvegsmálum.
Enda sjávarútvegsstefnan löngu gjaldþrota. Verst ef hún gerir þjóðina það líka.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 25.6.2008 kl. 17:27

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Guðmundur þetta endar með sameiningu.

Sigurjón Þórðarson, 25.6.2008 kl. 19:39

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sammála ofanskráðu.Og kvitta fyrir innlit og lestur á síðunni.Kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 25.6.2008 kl. 20:41

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Allt rétt Jóhann,

gott að vita Guðmundur,

vonandi Sigurjón,

ánægjulegt Ólafur,

með kærri kveðju.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.6.2008 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband