Ó góði Guð, hugga þá er sorgir hrjá.

" Ég trúi þótt að titri hjartað veika, og tárin blindi augna minna ljós.... " svo segir í sálmi Matthíasar Jochumssonar sem af snilld setti fram huggun í sínum ljóðum. 

Fyrir mig er trúin lífsmeðal, sama lifsmeðal og blóðþrýstingslyfin mín, því án trúar teldi ég mig illa á vegi stadda til að eignast von.

Þegar brýtur lífsins storð og samferðamenn hverfa snögglega á brott fyrir aldur fram er bænin nærtæk til þess að biðja um huggun og hjálp til handa þeim er á þurfa að halda í hvers konar raunum lífsins er henda um dagana.

Á sínum tíma var mér gefin sálmabók í slíkum raunum sem ég ekki átti þá og ég drakk í mig lestur sálma hvern dag um nokkurn tíma mér til sáluhjálpar og þar kynntist ég MJ sem einstöku ljóðskáldi.

Ég bið góðan Guð að styrkja og styðja þá er sorgir hjrá.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sendi þér knús Guðrún María mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.2.2008 kl. 10:44

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl mín kæra. Þetta er hjartnæmur pistill hjá þér og sýnir hvað þú hugsar fallega til meðbræðra þinna. Ég hef sungið í kirkjukórum í áratugi eða frá því ég var sextán ára gömul og man ekki eftir þessum texta. Veistu nr. hvað hann er í sálmabókinni.  Þá kemur mér í hug að ég man bara eftir einum sálmi sem fékk mig alltaf til að gráta en það er skírnarsálmurinn nr 252 í sálmabókinni. Aðrir sálmar finnst mér vera meira í að lofa guð og ala á guðsótta og það finnst mér miður. En svona hlýhugur, hvort sem við köllum það bæn eða hvað, er það sem er sterkasta aflið í heiminum að mínu mati. kveðja til þín Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 21.2.2008 kl. 20:16

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælar.

Kolla þetta er sálmur 390.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.2.2008 kl. 00:02

4 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Drottinn er minn hirðir,

mig mun ekkert bresta.....

Bestu kveðjur til þín mín kæra

Kjartan Pálmarsson, 22.2.2008 kl. 00:57

5 identicon

Knús til þín ....

Maddý (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 00:59

6 Smámynd: Ragnheiður

Ragnheiður , 22.2.2008 kl. 01:16

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Ó hvað þið eruð sæt.

knús á ykkur öll.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.2.2008 kl. 02:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband