Hafnfirðingar með stærsta snjókarlinn, hvað með nágrannasveitarfélögin ?

Get nú ekki á mér setið að reyna að koma af stað smá keppni í snjókarlagerð á höfuðborgarsvæðinu en hér er efniviður núna að sjá má. Fyrsti snjórinn sem heitið getur.

Get hins vegar ekki sagt að ég hafi verið mjög ánægð með þæfingin á þjóðvegi eitt í Holtunum því þar var blindbylur um tíma og hundleiðinlegt að keyra um. Fljúgandi hálka á flestum stöðum en yfir Hellisheiði var ekki að sjá að hefði bætt í snjó mjög mikið frá því á Þorláksmessu.

kv.gmaria.

 


mbl.is Risasnjókall í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hér í garði mínum í Grafarvogi er meiriháttar jólalegt. Trén sliga af sjnóþúnga og Nikolaus og Rudolf virðast ekki fjarri:) Gleðileg Jól til ykkar

ALLRA!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.12.2007 kl. 01:16

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já trúi því Guðmundur , mjög jólalegt,  sömuleiðis góðar jólakveðjur í Grafarvoginn.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 26.12.2007 kl. 01:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband