Ég gæti sagt svo margt og mikið......

Ég gæti sagt svo margt og mikið,

mælt í hljóði, hafið raust.

Þótt í burtu þyrlist rykið,

það kemur aftur endalaust.

 

Þá er að hamra, aftur , aftur,

enn á ný, að hækka róm.

Með von um það að komi kraftur,

kanski með sinn leyndardóm.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Lunkin ertu að yrkja hér

ágætlega, sýnist mér.

Hamraðu´ aftur heitt þitt stál,

þá heillar fólk þitt stefjamál.

Jón Valur Jensson, 21.12.2007 kl. 03:02

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir það Jón Valur.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.12.2007 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband