Íslenskir fjölmiðlar eru algerir snillingar í að kynna almenningi fjárlög hvers árs !

Umræða um fjárlög er oftast af skornum skammti í fjölmiðlum og þessi fyrirsögn mín því " öfugmæli ".

Raunin er sú að umræða kemur yfirleitt til sögu frá þeim aðilum sem niðurskurður beinist að, þá og þegar slíkt hefur komið fram.

Margir þingmenn reyna sitt besta í að kynna fyrirhugaðan niðurskurð og það skal þakka, hins vegar skortir mjög umræðu um forgangsröðun í hinum ýmsu málaflokkum, en umræða um forgangsröðun kemur ekki til nema hugmyndir um niðurskurð séu kynntar almenningi.

Einkum og sér í lagi á þetta við er varðar málefni heilbrigðisþjónustu í landinu.

kv.Guðrún María.


mbl.is Fjárlög afgreidd á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Ingólfsson

En er þá ekki best fyrir fólk að athuga VERALDARVEFINN og kannski googla fjárlög og þá koma kannski fram breytingar? Nei held ekki vegna þess að fólk er svo heilalatt samanber ólæst fólk í sumum trúarbrögðum sem að er sagt að strika við þetta og hitt og hafa svo ekki hugmynd um hvað það var að kjósa! Og ef að fjölmiðlarnir eiga að taka við upplýsingaskyldu stjórnsýslunnar þá er Bleik Brugðið! Nei bara að koma á lestrar og vitundarvakningu almennings um þjónustu og leiðbeiningar þá í gegnum Heimabankana vegna þess að fólk les Heimabankana en ekki neinar aðrar tilkynningar frá ríki og sveitarfélögum!

Örninn

Örn Ingólfsson, 4.12.2011 kl. 03:31

2 identicon

Mikið er ég sammála þér í þessu. Fjárlögin eru mjög torlesið plagg og ekki fyrir sauðsvartan að stagla sig framúr þeim.

Hlutverk fjölmiðla er að setja fram á skiljanlegan hátt allt það sem er efst á baugi hverju sinni og getur valdið staumhvörfum í samfélaginu. Megin niðurstöður og breytingar á fjárlögum landsins og meðfylgjandi lagabreytingar eru jafn mikilvægar hverjum og einum og lækkun eða hækkun á launum hans eða afkomu.

Fjölmiðlar á Íslandi hafa engan veginn náð að koma þessu til þjóðarinnar og grunar mann oft að þeir séu ekki nógu vel mannaðir til að greina aðalatriðin í flóknum hlutum og koma því til skila á prenti eða ljósvakanum.

Þess vegna er almenningur háður því að skræla úr pólitísku stagli flokkspólitíkusana það sem skiptir máli í fjárlögum hvers árs. Það er ekki á allra færi að gera.

Sveinn Úlfarsson (IP-tala skráð) 4.12.2011 kl. 11:12

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælir Örn og Sverrir, takk fyrir innleggin.

Almenningur getur vissulega fundið upplýsingar en eins og Sverrir bendir á þá er það hlutverk fjölmiðla og koma upplýsingum fram um meiriháttar breytingar hverju sinni.

Fjölmiðlar geta staðið sig betur en þeir gera í þessu efni.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 5.12.2011 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband