Hvar eru dýraverndunarsamtök ?

Hér er á ferðinni ómannúðleg ráðstöfun að mínu viti þar sem eitt merki á að nægja og nóg að særa dýr til merkingar einu sinni.

Því til viðbótar er hér tvöfaldur kostnaður sem verið er að innleiða í þessu sambandi.

kv.Guðrún María.


mbl.is Merki í bæði eyru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Dýravernd er það sem kommiserum ESB kemur síst í hug, Guðrún.

Þetta kemur til vegna aðlögunar okkar að ESB og því verður ekki mótmælt.

En auðvitað er eitt merki meir en nóg. Hér á landi eru bú blessunarlega ekki stærri en svo að bændur þekkja flestar sínar skepnur. Það á hins vegar ekki við í ESB, þar eru sannkölluð verksmiðjubú, þar sem fjöldu skeppna er svo mikill að sumir bændur ná ekki að sjá sumar skepnur sínar þann tíma sem þær lifa. Þar getur verið þörf á að tvímerkja hvern grip, en ekki hér á landi.

Þessi verksmiðjubú eru eitthvað það versta sem fundið hefur verið upp, þar sem meðferð skeppna á þeim er skelfileg. En hagfræðingarnir horfa á tölur, því fleiri skepnur undir einu þaki hlýtur að gefa meiri arð en færri. Þeir gleyma hins vegar að skepnur eru lifandi verur og þurfa aðra meðferð en vélar, þær þurfa umhugsun og sú umhugsun getur aldrei farið fram við hvern grip í verksmiðjubúi.

Það hafa nokkrum sinnum verið gerðar heimildarmyndir um þessi bú, bæði vestan hafs og austan. Jafnvel hafa þessar myndir ratað í íslenskt sjónvarp, en sökum fjarlægðar okkar frá þessum hörmungum hafa þær sjaldan fengið mikla umfjöllun hér.

Þessi fjarlægð gæti þó breyst við inngöngu í ESB. Þá væri ekki fjarlægt að hér á landi yrðu einungis örfá kúabú, reyndar eru stæðstu búin innan ESB svo stór að eitt eða tvö slík gætu sinnt íslenskum markaði.

Gunnar Heiðarsson, 20.11.2011 kl. 08:28

2 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Leiðréttið mig ef ég fer með fleipur en mig minnir að fyrra merkið seigir til um hvaða skepna þetta sé og frá hvaða búið það komi en seinna merkið seigi til um frá hvaða landi skepnan kom(svona ef ske kynni að þær rölti yfir landamærin og ruglist td. með öðru fé frá grikklandi hollandi eða spáni.

Brynjar Þór Guðmundsson, 20.11.2011 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband