Framsóknarflokkurinn er framtíðarforystuafl í íslenskum stjórnmálum.

Ég óska Guðmundi Steingrímssyni góðs, og vona að hann finni sínum hugsjónum farveg í "Frjálslyndum flokki ", en undrast það vissulega að slíkt viðhorf hafi hann ekki talið sig finna í Framsóknarflokknum.

Sú er þetta ritar kannast agnar ögn við úr og inngöngu manna í stjórnmálaflokka, hafandi verið flokksmaður í einum slíkum flokki á sínum tíma.

Ég ætla ekki að mæla því bót.

Mín skoðun er sú að Framsóknarflokkurinn með öllu því öfluga unga fólki sem þar er innanborðs eigi sér mikla og góða framtíð í íslenskum stjórnmálum samtímans, þar sem rótgróið stjórnkerfi ákvarðanatöku er leiðarljós til framtíðar.

kv.Guðrún María.


mbl.is „Á ekki lengur heima í Framsókn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl; Guðrún María, jafnan !

EKKI; alls ekki, með And-byltingarsinnann og luðruna, Sigmund Davíð Gunnlaugsson í stafni, fornvinkona góð.

Gleymdu alfarið; þeim möguleika !

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.8.2011 kl. 00:47

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Óskar Helgi.

Þarna hefur þér aldeilis orðið á í rýni þinni á íslenzka pólítik og ég mun fyrst til að fagna því þegar þú áttar þig á samhengi mála.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.8.2011 kl. 01:03

3 identicon

Sæl á ný; Guðrún María !

Hefir mér orðið á; hvernig, lest þú í það ?

Rolan; Sigmundur Davíð, hefir ekki enn, mannað sig upp í, að reka Halddór - Siv - Finn - Birki Jón og Valgerði; OPINBERLEGA, úr flokks ræksninu.

Vinsamlegast; ekki reyna, að snúa út úr orðum mínum, Guðrún María.

Það er ekki; sá aldursmunur á okkur - að þú munir ekki, jafnvel og ég, fyrir hvað þetta lið hefir staðið, til þessa, eða hvað ?

Svona; bara að árétta, mína afstöðu - þó svo; einhver tímabundin glýja sé, í þínum augum, fyrir þessu packi, Guðrún mín.

Með; sízt lakari kveðjum - en þeim fyrri /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.8.2011 kl. 01:15

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll aftur Óskar.

Þú munt sjá það að Framsóknarflokkurinn er nýr flokkur jafnvel enn nýrri í dag en í gær, trúðu mér.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.8.2011 kl. 01:45

5 identicon

Heil á ný; Guðrún María !

Gerðu okkur báðum; þann einfalda greiða, að vera ekki með þessa óþörfu útúrsnúninga, gagnvart mér. 

Veit ekki til þess; að ég hafi unnið, til þess.

''Framsóknarflokkurinn''; er ómengaður GLÆPA- OG HRYÐJUVERKA FLOKKUR !!!

Með; hinum sömu kveðjum - sem seinustu /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.8.2011 kl. 01:50

6 Smámynd: Gissur Jónsson

Tek undir með þér Guðrún.

Kv. Gissur

Gissur Jónsson, 23.8.2011 kl. 01:53

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir það Gissur.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.8.2011 kl. 02:03

8 identicon

Komið þið sæl; að nýju !

Gissur Jónsson !

Hefir þú dvalið; í einhverju öðru Sólkerfi, en við hin ?

Minni þig á; örlög Sambands íslenzkra Samvinnufélaga - Kaupfélaganna, flestra - Samvinnutrygginga - núverandi stöðu; í íslenzkum Landbúnaði.

Að ógleymdri; svokallaðri einkavæðingu Bankanna, jafnframt.

Þarf ég nokkuð; að minna þig á fleirra, að svo komnu ?

Með; samt sem áður - áþekkum kveðjum, hinum fyrri /

Óskar Helgi Helgason

fyrrv. starfsmaður, Kaupfélags Árnesinga 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.8.2011 kl. 02:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband