Vímuefnavandamálið í íslensku samfélagi.

Stundum finnst mér Lögreglan vera alein að vinna í vímuefnavandanum, en auðvitað er svo ekki, við eigum meðferðaúrræði ýmis konar þar sem allt er reynt til þess að koma ungu fólki út úr þessum vanda, en gengur misvel, eins og með ofnotkun áfengis.

Eigi að síður tel ég að við Íslendingar þurfum að taka þessa hluti fastari tökum varðandi börn og ungmenni sem ánetjast vímuefnum, og lokaðar meðferðarstofnanir eru lausnin, annað ekki.

Börn eiga ekki að geta gengið út úr opnum meðferðarúrræðum meðan þau eru börn, þar skortir mörk.

Hinn stórkostlegi samfélagslegi kostnaður sem hlýst af því að missa ungt fólk í viðja vímuefnanotkunar er ómældur að ég tel, þar sem dóms, félags og heilbrigisráðuneyti ásamt menntamálaráðuneyti borga brúsann.

Þá er ótalin þjáning fjölskyldna varðandi þessi mál sem seint mun verða mælanleg eining.

kv.Guðrún María.


mbl.is Fundu kannabis á Suðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já rétt er það, vímuefnavandinn er erfitt fyrirbæri, en ég algjörlega skil ekki afhverju fólk vill gera vímuefnaneytendur sem stjórna ekki neyslu sinni að glæpamönnum, frekar en sjúklingum.

Afhverju er lögreglan að skipta sér af einkaneyslunni hjá þessu fólki, og afhverju kom það í fréttunum? Ég get ekki séð að þeir hafi skaðað neinn né sjálfan sig og ef þeir eru komnir í eitthvað sjálfseyðingarferli (sem ég stórlega efast  um, þar sem bara um kannabis er að ræða, eða, svo virðist vera), þá ætti þetta einungis að heyra undir heilbrigðiskerfið og fjölskyldu viðkomandi.

Ég sé það ekki fyrir mér að lögreglan brjótist inn til manns sem er að drekka bjór um hádegi á miðvikudegi, þó svo að ofneysla á áfengi sé á allan hátt verri heilsu þinni en ofneysla kannabiss. 

Unnar (IP-tala skráð) 23.5.2010 kl. 04:19

2 Smámynd: Tómas Waagfjörð

Hver ert þú að geta ákveðið fyrir aðra hvort þeir megi reykja kannabis eða ekki?

Finnst þér virkilega rétt að gera fólk að glæpamönnum fyrir það eitt að sitja heima hjá sér og reykja vafning?

Stríðið gegn fíkniefnum var byggð á lýgi til þess að bandaríkjamenn gætu handtekið hippana sem voru að mótmæla Víetnam stríðinu og þau rök sem voru notuð þá eru ekki notuð lengur og fólk veit ekki einu sinni hver þau voru.

Áður en fíkniefni voru bönnuð þá voru glæpir í algjöru lágmarki og núna eru glæpir í sögulegu hámarki þar sem stór hluti hvers lands er gerður að glæpamönnum fyrir það eitt að velja eitt fíkniefni fram yfir annað, til dæmið kannabis í staðinn fyrir alkahól.

Að banna eitthvað býr til glæpi því þar sem er eftirspurn mun myndast framboð, framboð sem kemur þá frá skipulögðum og alþjóðlegum glæpahópum sem pynta og drepa til að ná fram markmiðum sínum, sem er gróði.

Ef bönnum væri lyft og fíkniefnin seld gegn ávísun læknis, eða bara úr sérstökum búðum eins og alkahól, þá myndu glæpaklíkurnar hverfa og glæpir snarminnka, eins og sést hefur þar sem efnin hafa verið leyfð, horft framhjá eða jafnvel gefin að ríkinu eins og heróín í Sviss.

Kannabis er leyft á mörgum stöðum sem lyf, uppáskrifað frá lækni, hræsni einhver?

Ef fíkniefni væru leyfð myndir þú þá missa þig og fara út í búð og kaupa þér? Nei ég helt ekki, af hverju heldurðu þá að allir hinir í heiminum myndu gera?

Sumir eru og verða alltaf fíklar, ef ekki efni þá vinna eða áhugamál, jafnvel kynlíf. Lang flestir sem nota fíkniefni gera það um helgar til þess að skemmta sér, og svo er fólk sem drekkur sem vill gera hina af glæpamönnum, hræsni og fasismi og ekkert annað.

Og ef fólk hefur ekkert nema einhverja fordóma og vanvit fram að færa í sambandi við þetta málefni þá ætti það ekki að vera tjá sig til að byrja með.

Farðu nú og tala við doksa og fáðu lyfseðilinn þinn fyrir löglega dópinu þínu og svo í ríkið og keyptu þér alkahól og ekki reyna segja hinum hvernig þau eiga að lifa lífinu sínu á meðan þau eru ekki að skapa neinn.

Tómas Waagfjörð, 23.5.2010 kl. 04:43

3 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Þetta er góð grein, en Tómas virðist misskilja greinarhöfund fullkomlega.

Páll Geir Bjarnason, 23.5.2010 kl. 08:24

4 identicon

Lögleiða kannabis og skattleggja neysluna. Og hafa aldurinn í 20 ára, Taka á upp fullkonari mæla til að mæla magn, Því það er fáranlegt að taka ökumann sem reykti fyrir 2 dögum í test og leggja svo á hann kærur fyrir eitthvað sem aðilinn gerið fyrir 2 dögum. Þetta er asnaleg lög sem kallast peninga sógun á skattpeningum.

Kristján Loftur Bjarnason (IP-tala skráð) 23.5.2010 kl. 12:19

5 identicon

Kristján og Tómas: Þið eruð eins og rispaðir geisladiskar, kóperaðir.

Matthías (IP-tala skráð) 23.5.2010 kl. 12:45

6 Smámynd: Tómas Waagfjörð

Matthías, þú veist að þú hefur engin rök fram að færa svo að þú ræðst á þá sem eru ekki sama sinnis og þú. Ég vorkenni fólki eins og þér því þið kunnið ekki að hugsa sjálfstætt og endurtakið bara það sem þið hafið heyrt án þess að skoða það nánar. Eflaust trúir þú því ennþá að það séu gereyðingarvopn í Írak.

Tómas Waagfjörð, 23.5.2010 kl. 16:49

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Tómas.

Þessi setning þín,

" Og ef fólk hefur ekkert nema einhverja fordóma og vanvit fram að færa í sambandi við þetta málefni þá ætti það ekki að vera tjá sig til að byrja með." er full af yfirlæti sem aldrei fer vel inn í vitræna umræðu.

Raunin er sú að ég veit nákvæmlega hvað ég er að tala um í þessu efni og færi fram skoðun mína á málum, og þótt þín skoðun sé önnur en mín, þá virði ég hana, og vænti þess sama á móti.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.5.2010 kl. 00:18

8 Smámynd: Tómas Waagfjörð

Eigi að síður tel ég að við Íslendingar þurfum að taka þessa hluti fastari tökum varðandi börn og ungmenni sem ánetjast vímuefnum, og lokaðar meðferðarstofnanir eru lausnin, annað ekki.

Þú ert að tala um að koma fram við börn, sem hafa verið alinn upp af oftast vanhæfum foreldrum eða misnotuð á einhvern hátt, eins og ótýnda glæpamenn og læsa þau inni, án dóms og laga fyrir það eitt að hafa liðið illa og viljað losna frá tilfinningum eða bara skemmta sér, eins og ´æeg og þú gerðum með víni þegar við vorum ung. En hve fljótt fólk gleymir þegar það eldist.

Þú ert ekki að sjá heildarmyndina, sérð bara refsingu og boð og bönn, eins og var gert fyrir hundruðum og þúsundum ára. Erum við ekki þróaðri en það. 

Tómas Waagfjörð, 24.5.2010 kl. 03:41

9 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Tomas.

Því miður virðist þú ekki hafa kynnt þér mikið að staðreyndum upplýsingum varðandi vímuefnanotkun hér á landi, þe. ef slíkt einskorðaðist við " vanhæfa foreldra " þá væri málið öllu umfangsminna en svo er ekki.

Til þess að ná börnum út úr vímuefnum, meðan börn eru börn, samkvæmt skilgreiningu laga, þarf lokaðar meðferðarstöfnanir, flóknara er það ekki.

Ég horfi á heildarmynd mála annað ekki.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.5.2010 kl. 01:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband