Óþarfar blaðurssamkomur fjármálaráðherra á þvælingi um heiminn.

Nú á að poppa upp trú á mörkuðum með yfirlýsingum allra handa, um hitt og þetta ef ég þekki rétt.

Mér er óskiljanlegt að fundir sem þessir séu nokkuð annað en flakk og fundabruðl með fjármuni ríkja þar sem fjármálaráðherrar hittast og skrafa saman semja einhverja moðsuðu sem yfirlýsingu án þess að nokkur skilgreindur árangur sé að slíku tilstandi í raun.

kv.Guðrún María.


mbl.is Efnahagsbatinn hraðari en búist var við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Guðrún þetta er einmitt það sem flaug í huga minn. Halda að það sé bati örfáir menn hafa sópað til sín gríðarlegum fjármunum sem almenningur á að borga með hærri sköttum og minni þjónustu vegna sparnaðar.

Þessi orð eru eins og vatnsgusa framaní almennan borgara!

Sigurður Haraldsson, 24.4.2010 kl. 09:26

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Hvað er að ykkur?

Dettur ykkur í hug að þessi bati skili sér ekki til okkar ?

Núna verða hækkanir drengnar til baka -´nýálagðir skattar lækkaðir eða strikaðir út -

Núna verður allt svo gott - ekki síst þar sem efnahagslægðin hér er grynnri en reiknað var með - mun minna fé þurfti í nýju bankana en reiknað var með og svo mætti lengi telja.

Svo er bara að bíða eftir umslagi inn um lúguna með ávísuninni  ekki satt??

Ólafur Ingi Hrólfsson, 25.4.2010 kl. 04:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband