Samvinna á forsendum kærleikans mun færa okkur fram á veg.

Hvarvetna í voru samfélagi er vitund fyrir umbreyttu þjóðfélagi hér á landi þar sem fjöldi manns hefur tapað atvinnu og hluti manna lækkað í launum. Það þýðir verulega umbreytingu á högum manna sem aftur þýðir að endurskipuleggja flest alla hluti að nýju frá því sem var.

Saman getum við unnið okkur út úr vandanum og forsenda samvinnu er virðing gagnvart ólíkum sjónarmiðum þar sem þekking okkar á kærleikanum kemur við sögu.

Kærleikurinn umber allt, og nærir sálina. Hann er að finna allt frá því smæsta upp í það stærsta.

Í brosi frá þeim er maður mætir á förnum vegi,

í hlýju faðmlagi,

í því að hlusta og veita skilning,

í því að gera aðeins meira en venjulega til að létta undir þar sem þarf,

í því að leita trúar, sem gefur von sem gefur kærleika, og mér sjálfri hefur um margra ára skeið verið það lyf er lífsins græðir sárin með bænum að kveldi dags.

í öllu því sem við upplifum skyldum við ætíð finna ljósu punktana, sem örlar fyrir, ef grannt er að gáð.

 

kv.Guðrún María.


mbl.is Margir eiga um sárt að binda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Falleg færsla Gmaría mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2010 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband