Sanngjarnt og eðlilegt.

Þessi tillaga hlýtur að fá hljómgrunn hjá yfirvöldum er ákvarðanir taka, einungis vegna þess að hluti íbúa á landinu er greiðir skatta jafnt öðrum og býr á eyju, á rétt á því að sanngirni sé gætt varðandi gjaldtöku af samgöngum í samfélagsþjónustu á landi uppi.

kv.Guðrún María.


mbl.is Vilja gangagjald í Herjólf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Það átti að gera göng í stað þess að gera heila höfn fyrir eitt skip sem fyllist svo af sandi með reglulegu millibili og kostnaðurinn við það að halda þessu hreinu þegar horft er 50 ár fram í tímann er mun hærri en göngin hefðu verið gerð og þau hefðu margborgað sig. Tala nú ekki um sparnaðinn að geta lagt allt rafmagn, sími, net og vatn til eyja í gegnum göng, ekkert vesen ef eitthvað slitnar að laga það og svo má ekki gleyma því að þá er ekki lengur bann á vissum svæðum sem er bannað að veiða en við göng opnast nýjar togslóðir.

Sævar Einarsson, 10.3.2010 kl. 00:48

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Ef til vill, tíminn á eftir að leiða það í ljós, hvort þetta dæmi gengur upp eður ei. Göng hins vegar gætu innihaldið sams konar vandamál einungis sökum þess að leiðin er á sprungusvæði þ.e endalaus vandamál viðgerða og lokunar. Nýjar togslóðir á þessu svæði ??? sé það nú ekki fyrir mér enda búið að rúlla allt út í því efni mér best vitanlega.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.3.2010 kl. 01:45

3 Smámynd: Sævar Einarsson

Það er bannað að trolla á þeim stað sem lagnir eru frá landi til eyja, man ekki hvort talað er um 1 mílu eða 3 mílur.

Sævar Einarsson, 10.3.2010 kl. 08:22

4 Smámynd: Sævar Einarsson

Enda eðlilegt, maður dregur ekki troll yfir vatnslagnir, símalagnir og eða rafmagnslagnir. Og þetta með sprungusvæðin þá var það aldrei kannað að fullu, fyrrverandi samgönguráðherra var í röngu kjördæmi og lét þetta sig litlu skipta.

Sævar Einarsson, 10.3.2010 kl. 08:25

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Það er alveg rétt hinn takmarkaði áhugi ráðherrans í þessu efni var sannarlega allsráðandi.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 11.3.2010 kl. 00:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband