Þarf ekki að æfa Almannavarnaáætlun á svæðinu ?

Gos í Eyjafjallajökli gæti valdið vandræðum í Bakkafjöru, þar sem framtíðarsamgöngur til Vestmannaeyja eru í lokaundirbúningi, þ.e ef hlaup úr jöklinum færi um Emstrur.

Í mínum uppvexti undir Eyjafjöllum var óttinn við jökulgos alltaf fyrir hendi hjá mér, eftir að ég vissi að hann væri virkt eldfjall,  og draum eftir draum sá ég jökulinn gjósa en án efa hafa þeir draumar verið hluti af óttanum við slíkt.

Mér rann það hins vegar til rifja fyrir um það bil áratug, er skjálftavirkni hófst, að ekki örlaði þá að almannavarnaáætlun á svæðinu svo ég spurðist fyrir um slíkt hjá þeirri stofnun sem því tilheyrir og fékk ágæt svör við mínum spurningum þá.

Nokkru síðar var komin almannavarnaáætlun sem var kynnt íbúum, en allur er varinn góður og ef eitthvað er í gangi núna sérstaklega þá væri ekki úr vegi að æfa þá áætlun sem til er, sem vonandi tekur mið af framkvæmdum við Bakkafjöru.

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Innskot undir Eyjafjallajökli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband