Þjóðaratkvæðagreiðsla SKAL fara fram, í kjölfar hennar geta menn metið málið.

Þessi ummæli hins annars ágæta þingmanns, eru að mínu viti ekki þau sem þingmenn ættu að viðhafa í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu, varðandi það atriði að " nota hana sem vopn ".

 

úr fréttinni.

 "Ég sem borgari vil þjóðaratkvæðagreiðslu, en sem þingmaður VG tel ég að það gæti verið betra að fara samningaleiðina, og nota þá möguleikann á þjóðaratkvæðagreiðslu sem vopn í deilunni,“ segir Lilja. "

Þingmenn alveg sama í hvaða flokki þeir tilheyra, ber að framfylgja stjórnarskránni, varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu um lög er forseti hefur synjað og vísað til þjóðarinnar, þangað til að niðurstaða þjóðarinnar í þvi máli liggur fyrir, skiptir engu máli hvað þingmenn vilja eða vilja ekki í þessu efni, og þangað til tel ég, vegna svarins eiðs að stjórnarskrá,  skyldu þeir bíða og virða niðurstöðu slikrar atkvæðagreiðslu og meta málið í framhaldi þess.

 

kv.Guðrún María.


mbl.is Vill þýskan sáttasemjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gerið ykkur grein fyrir hvað gerist með samþykki greiðslu á Ices(l)ave skuldarinni einsog hún lítur út núna.  Við erum að skuldsetja börnin okkar, barnabörn, barnabarnabörn ........ osfv.  Það má bara ekki gerast og það er á okkar ábyrgð að koma í veg fyrir það, þeas okkar sem höfum kosningarétt núna. 
Algjörlega burtséð í hvaða flokki við erum, málið snýst ekki um það. 

Mér rann kalt vatn mlli skinns og hörunds við eftirfarandi samtal:

Dóttir mín sem er 15 ára í 10. bekk, varð bæði reið og sár þegar hún komst að því að hún gæti ekki né mætti taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Ices.... , því hún væri ekki nógu gömul til þess.  "En það er ég sem þarf að borga þessa skuld alla æfi mína og börnin mín sem ég kanski eignast". 
"Ég ætla sko að flytja frá Ísland strax og ég get, búin með grunnskólann eða framhaldsskóla ef það veröur þá einhver"
 

Þurfum við frekar vitnana við um ábyrgð okkar sem getum mögulega haft áhrif á hvernig farið verður með þessa Ices.....-skuld.  Ég held nefnilega að orð dóttuir minnar séu skoðanir allmargra jafnaldra hennar og lýsir vel örvæntingu og þeirri andlegu þröng sem börnin okkar upplifa sig í.  Málið er að þau hafa lítið
sem ekkert verið spurð.

Hvet alla til að líta í eiginn barm í þessu ömurlega máli og að hefja okkur yfir allt flokkspóliskt argaþras.  Málið snýst ekki um það, heldur um börnin okkar, sem geta ekki haft áhrif á málið, því þau hafa ekki kosningarétt.  Og þá ekki þau ófæddu !!



--

Kveðja,
blog.is


blog.is er vefsvæði á vegum mbl.is.
Svör, fyrirspurnir og ábendingar berist á blog@mbl.is.
 

Guðbjörg Þórðardóttir (IP-tala skráð) 10.1.2010 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband