Skiljanleg ákvörðun.

Því miður virtist sem Guðmundur hefði hreinlega tapað sér þegar Gunnar Tómasson var í viðtali fyrst á Útvarpi Sögu varðandi icesavemálið, þar sem sá sami viðhafði bölv og ragn um skoðanir Gunnars og það að honum leyfðist að koma þeim á framfæri, líkt og hann sjálfur hefði " einkaleyfi til að tala á Útvarpi Sögu ".

Það að menn þurfi að vera bölvandi og ragnandi ekki hvað síst fræðimenn er all sérkennilegt og ég skil vel að stjórnendur Útvarps Sögu hafi ákveðið að skipta um menn.

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Guðmundur rekinn af Útvarpi Sögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sammála Guðrún!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 17.11.2009 kl. 01:20

2 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Guðrún, Guðmundur var ekki rekinn fyrir að bölva og ragna, heldur ekki fyrir kvenfyrirlitningu. Hann var rekinn fyrir að dirfast að finna að því að Arnþrúður hafi hringt óviðbúið í verðandi fósturmóður drengs til að hnýsast í hennar einkahagi og vera beinlínis dónaleg við hana. Auk þess mátti skilja á honum að honum findist sumir ekki alltaf vera allsgáðir í útsendingu (ég er sammála honum með það.)

Hvað sem má segja um framgöngu barnaverndaryfirvalda í þessu máli þá var framkoma Arnþrúðar með öllu óverjandi og ekki sæmandi. Auk þess myndi hún seint geta rekið fólk fyrir orðbragð miðað við það orðbragð sem hún sjálf viðhefur.

Þóra Guðmundsdóttir, 17.11.2009 kl. 10:48

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Þóra.

Fyrir mína parta fannst mér það sjálfgefið að viðkomandi hefði verið látin fara fyrir það sem ég nefndi hér að ofan.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.11.2009 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband