ER Íslandi haldið í gíslingu Evrópusambandsþjóða með aðstoð Alþjóða gjaldeyrissjóðsins ?

Hin stórfáránlega forgangsröðun þessarar ríkisstjórnar þess efnis að leggja inn umsókn að Evrópusambandinu og hefja svo samningaviðræður við tvær þjóðir innan þess ríkjabandalags um fjárskuldbindingar, mun að mínu viti skrifast sem pólítísk mistök fyrr og síðar.

Þar eru hagsmunir komandi kynslóða þessa lands sem hér lifir settir á altari hagsmuna fjármagnseigenda í Evrópu hérlendis sem erlendis fyrir og eftir hrun.

Vilji þjóðarinnar virðist ekki skipta máli heldur pólítískar áherslur flokka við stjórnvölinn varðandi það atriði að troða þjóðinni inn í markaðshagsmuna ríkjabandalag í Evrópu, þar sem farið er úr öskunni í eldinn, hvað varðar hagsmuni einnar þjóðar.

Enduruppbygging eins samfélags upp úr hruni hefur verið látin reka á reiðanum af ríkisstjórn landsins, meðan Ísland vaggar og veltist í ólgusjó hinna pólítisku mistaka stjórnvalda, um forgangsröðun mála.

 

Áfram Ísland, ekkert ESB.

kv.Guðrún María.


mbl.is Ekki „afsláttur" af fyrirvörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Svarið við fyfirsögniunni...er vitanlega já !

Bretar og hollendingar, vanir samningamenn, tóku ekki afstöðu til fyrirvara Alþingis, fyrr en þeir voru frágengnir þaðan. Gerum það sama, tökum ekki afstöðu til krafna breta og hollendinga, fyrr en hún liggur fyrir opinberlega. Það væru mikil mistök að fjalla um kröfur þeirra opinberlega fyrr en þær eru formlega komnar á okkar borð. Sýnum yfirvegun góðra samningamanna.

Reynum að klúðra ekki málum að nýju !

Áfram Ísland ekkert ESB !

Haraldur Baldursson, 18.9.2009 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband