Íslenskir læknar á villigötum, gleyma offitu, áfengi og tannheilsu.

Það skýtur skökku við að Læknafélag Íslands kjósi að einblína á einn þátt í heilsufarslegum vandkvæðum þjóðar, á krepputímum í stað þess að viðhafa heildaryfirsýn yfir almennt heilbrigði og þjónustu þar að lútandi sem óhjákvæmilega mun verða skert að einhverju leyti.

Fréttin sem ég var að blogga um hér áðan, varðandi það atriði að verið sé að þróa bóluefni gegn reykingum, kann að eiga þátt í þessum áherslum félagsins án þess að ég vilji fullyrða þar um.

Það er hins vegar ekki lækna að segja til um hvað stjórnvöld skuli gera, s.s varðandi bann við sölu tóbaks og frekar að læknar stofni stjórnmálaflokk til þess að berjast fyrir því, það gefur augaleið og þeir hinir sömu því komnir út fyrir sitt faglega viðfangsefni.

Offita, áfengi og tannheilsa eru þrjú atriði sem læknar hefðu eðli máls samvæmt faglega átt að álykta um samtímis tóbakinu í samræmi við það sem þeir hinir sömu kjósa að draga fram í þessu efni.

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Tóbak verði tekið úr almennri sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Mér finnst þetta sjálfsagður hlutur í forvarnarstarfi, miðað við nýlegar fréttir af lungnasjúkdómum og -krabbameini landans. Tannheilsa er undirflokkur þarna, þar sem reykingar fara mjög illa með tennur, það er hægt að spyrja hvaða tannlækni sem er um það.

Ég er sammála því að það má líka ræða offitu, en spurning hvort að þarf alltaf að  taka allt fyrir í einum pakka? .. 

Ef lagfæring á einni "slysagildur" óþörf vegna þess að það finnast aðrar annars staðar? .. skil það ekki.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.9.2009 kl. 08:03

2 identicon

Þar sem þetta var tóbaksvarnarþing finnst mér ekkert skrítið að þeir hafi ekki  verið að tala um offitu. Ég held að þetta sé árlegur viðborður hjá þeim og væntanlega þurfa þeir að hafa eithverjar niðurstöður eftir að hafa haldið þing.

Hrafnkatla (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 14:56

3 identicon

mér finnst ekkert að því að taka eitt vandamál í einu því það er ekki hægt að leysa allt á einubretti.

doddi (IP-tala skráð) 17.9.2009 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband