Ávarp til forseta lýðveldisins.

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands.

Komdu sæll Ólafur.

Ég vil hér með skora á þig að nota og nýta þann rétt forseta að vísa máli til þjóðarinnar, varðandi þær skuldbindingar sem meirihluti þings hefur í hyggju að láta almenning á Íslandi ábyrgjast varðandi icesavesamninga.

Mín bjargfasta skoðun er sú að við Íslendingar séum að samþykkja yfir okkur meira en okkur ber sem þjóð, varðandi bankahrun á öllu Evrópska efnahagssvæðinu.

Ég tel að sú gjá sem kann að myndast milli þings og þjóðar, fái þjóðin ekki að segja sitt um þessa samningagerð, verði djúp.

með von um aðkomu þína að þessu máli.

Virðingarfyllst.

Guðrún María Óskarsdóttir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Agný

Við erum bara sú þjóð sem að elítan ákvað að fengi að borga brúsann fyrir allar hinar þjóðirnar...

Svo sér þetta lið ekkert nema ESB...og aftur ESB...eins og einhverja alsherjar lausn á öllum okkar málum...sem einhverja patent lausn..held að það sé því miður ekki raunin...við verðum gleypt sem Jónas af hvalnum en ég efast um að við séum eins klár og Jónas var...

Kv. Agný

Agný, 30.8.2009 kl. 16:07

2 Smámynd: Árelíus Örn Þórðarson

Ég vona að forsetinn taki mark á þessu bréfi þínu og leyfi þjóðinni að kjósa um þetta.

Ef á annað borð á að reyna að styrkja lýðræðið  í þessu landi eftir svo mörg ár spillingar og græðgi árin á undan

Árelíus Örn Þórðarson, 30.8.2009 kl. 23:42

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæl Guðrún. Hef því miður enga trú að vinstrisinninn Ólafur Ragnar fari að
rugga báti vinstrisinna, og muni samþykkja þjóðsvikin eins og Jóhanna og
Steingrímur, sbr blogg mitt um þetta síðar í kvöld.....

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.8.2009 kl. 21:48

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælir.

Nú mun reyna á forseta sem hefur tekið þátt í pólítík áður sem vinstri maður, gengur hann erinda pólítikur enn eða ekki.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.8.2009 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband