Borgarahreyfingin vildi flokksræði á þing, ólíkt Lýðræðishreyfingunni.

Því miður kemur það ætíð betur og betur í ljós hve mikilvægt það er að hver maður sé kjörinn án þess að undirganga flokksræðisformúlur hér á landi.

Fyrst og síðast er það nefnilega þannig að hver þingmaður sver eið að stjórnarskránni til þess að vinna samkvæmt sinni sannfæringu, og við því getur flokksræði lítið gert.

Hafi Esb verið meginmarkmið grasrótar Borgarhreyfingarinnar, þá var betur heima setið en af stað farið að mínu mati, og ég tek enn hattinn ofan fyrir þeim þremur þingmönnum þessa flokks sem greiddu atkvæði sitt gegn því hinu sama.

kv.Guðrún María.


mbl.is Stjórn vill varamenn á þing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Finnbogason

Mér sýnist þú ekki hafa lesið alla greinina, eða látir stefnu þína í ESB málum ráða  því hvernig þú skilur þetta.

Málið snýst um skort á samkiptum milli þinghóps og grasrótar við kúvendingu frá stefnu hreyfingarinnar í  einu stærsta málinu í samfélaginu.

Sævar Finnbogason, 7.8.2009 kl. 01:52

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sævar.

Því miður var það vitað mál að innan allra flokka hvaða nafni sem nefnast væru skiptar skoðanir um aðild að Esb, en það atriði að tengja ekki þessi tvö mál varðandi icesave annars vegar og aðildarumsókn hins vegar á sama tíma er Akkilesarhæll eins þingmanns Borgaraflokks, ekki hinna.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.8.2009 kl. 01:58

3 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Hver þingmaður greiðir atkvæði samkvæmt sinni samvisku...

Ég held að þetta sé svona í hnoptskurn það sem þú ert að reyna að segja Guðrún, er það ekki??

En hafa þingmenn þá samvisku til að svíkja þá sem komu þeim á þing?? Eða samþykktir síns flokks??

Það segir í lögum flestra ef ekki allra flokka að flokksþing fari með æðsta vald í málefnum flokksins, og flokksþing er öllum opið sem í flokkin eru skráðir, þá má nú alveg færa fyrir því rök að virkt flokksræði sé ekki alslæmt, og ég tek fram VIRKT flokksræði ekki óvirkt þar sem örfáir kalla leikina...

En ég get líka tekið undir þetta samviskusjónarmið varðandi atkvæða greiðslu, menn verða að meta það vherju sinni hvar samviskan liggur....

Eiður Ragnarsson, 7.8.2009 kl. 02:15

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Eiður.

Hvað varðar Borgarahreyfinguna þá get ég sagt það að aldrei tók ég eftir að sá flokkur hefði sérstaklega aðild að ESB á dagskrá í kosningabaráttunni, var ég þó þar þáttakandi í sjónvarpsþáttum í kosningabaráttu sem fulltrúi Lýðræðishreyfingarinnar, þannig að sú áhersla var ekki sýnilegt þar að lútandi.

Að öðru leyti tek ég undir þína hugleiðingu.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.8.2009 kl. 02:30

5 Smámynd: Sævar Finnbogason

Óskapleg rökleysa er þetta hjá þér Guðrún. Ég skal reyna að útskýra þetta á mjög einfaldan hátt.

Á Íslandi er fulltrúalýðræði þar sem fólk kýs stjórnmálaflokka vegna stefnu þeirrad. Stefna þeirra það sem sé þeir ætla að gera komist þeir á þing, þess vegna ætlast kjósendur til að verðandi þingmen geri það sem þeir lofuðu en ekki það sem þeir fordæmdu í kosningabaráttunni. Og síst af öllu á þess að ræða það við nokkurn annann í hreyfingunni. 

það var stefna hreyfingarinrinnar að farið yrði í aðildarviðræður að því gefnu að þjóðin fengi að kjósa um niðurstöðuna.

UM þetta snýst málið, traust og samvinnu en ekki ESB.

Borgaraflokkurinn átti ekki að verða neinn framsóknarflokkur, þar sem fólki er lofað öllu fögru g svo eitthvað allt annað gert að loknum kosningum, á tveim mánuðum

Sævar Finnbogason, 7.8.2009 kl. 10:09

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sævar.

Þú átt það við þig sem þér finnst rökleysa, að öðru leyti hafði ég svarað þér hér áður.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.8.2009 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband