Galin ráðstöfun einnar ríkisstjórnar.

Það er sannarlega afar illa sýnilegt að ein ríkisstjórn skuli hlaupa til með milljarða til þess að bjarga einu vátryggingafyrirtæki sem mun nær væri að færi hreinlega á hausinn, ,meðan fjöldagjaldþrot blasa við heimilum þessa lands.

Allt öðru máli gegnir um kröfur sem lúta að ábyrgð iðgjalda sem innifelur lögbundin atriði.

 

kv.Guðrún María.

 

 


mbl.is 16 milljarðar inn í Sjóvá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Fyrir 16 milljarða mætti klára ansi mörg mannvirki og vegagerð en nei, það er búið að skera það niður,frysta það alveg bara til að bjarga útrásarvíkingum, ég er mjög hræddur um að hér eigi eftir að verða blóðug bylting, ef ekki þá ætla ég að vona að það séu til nægjanlegar byrgðar af Astroglide og vaselíni, ekki ætla ég að borga þetta, er farinn að leita mér að vinnu erlendis.

Sævar Einarsson, 9.7.2009 kl. 04:01

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ef þessar 16 þúsund milljónir er ekki settar inn verður þá ekki tjónið ómælanlegt ég held það - sárt að horfa svo upp á þetta fólk spóka sig um hér á landi með fullkomlega áhyggjulaust m. sakleysisvipinn og fullar hendur fjár

Jón Snæbjörnsson, 9.7.2009 kl. 08:56

3 Smámynd: Arndís Ósk Hauksdóttir

Hvað er í gangi með þessa ríkisstjórn. Afhverju má þetta fyrirtæki ekki bara fara á hausinn?

Arndís Ósk Hauksdóttir, 9.7.2009 kl. 09:34

4 identicon

Hvers vegna? Það er ekki góð stjórnsýsla að ákveða að verja um 14 milljörðum á fjármunum ríkissjóðs til þess að bjarga tryggingafélagi frá gjaldþroti. Það verður að hefja þá reglu til vegs að þeim sem starfa við stjórn landsmála hvort sé um að ræða embættismenn eða stjórnmálamenn að þeir útskýri og upplýsi fólk hvers vegna ákvörðun er tekin um það sem um er að ræða hverju sinni. Hvers vegna er verið að bjarga þessu tryggingafélagi? Hvaða hagsmunir eru þar á ferð?  Af hverju ferð það ekki í gjaldþrot? Þetta eru spurningar sem fá verður svar við. Á meðan að ekki eru gefnar skýringar sem hægt er að taka gildar, verður að líta á þetta sem vinargreiða á milli aðila.

Ólafur A. Guðmundsson (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband