Ísland EKKI hluti af Evrópusambandinu, og ónýtt regluverk þess EKKI á ábyrgð Íslendinga.

Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkja ákváðu að skipa gerðardóm, um skuldbindingar Íslands, vægast sagt afar fróðlegt,

 

 "Þegar í ljós kom að umboð dómsins til að skilgreina skuldbindingar Íslands væri mjög víðtækt, dóminum væri ætlaður mjög skammur tími til að komast að niðurstöðu, og að niðurstaðan væri bindandi, var það mat ríkisstjórnarinnar að Ísland gæti ekki fallist á þessa málsmeðferð.

Hinir fulltrúarnir komu engu að síður saman og gáfu samdóma álit eftir rúmlega sólarhringsskoðun um að íslenska ríkinu bæri að ábyrgjast greiðslu lágmarkstrygginga samkvæmt tilskipuninni dygðu eignir Tryggingarsjóðsins ekki til. Ísland hefur ekki viðurkennt þessa niðurstöðu."

Hvaða lögsögu hafði þessi gerðardómur Evrópusambandsins yfir því atriði setja alla ábyrgð á Íslendinga í þessu efni  ?

kv.Guðrún María.


mbl.is Árni átti í vök að verjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Við erum hluti af EFTA og EES sem aftur er samtvinnað ESB. Erum í raun að mestu í ESB ef það hefur farið framhjá þér.

Páll Geir Bjarnason, 1.7.2009 kl. 02:36

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Áttum við sæti í þessu gerðardóm ?

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 1.7.2009 kl. 02:42

3 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Já, í raun. Ef þú læsir fréttina:

"Á fundinum var ákveðið að skipa gerðardóm með fulltrúum tilnefndum af ráðherraráði ESB, framkvæmdastjórn ESB, Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA (sem væri tilnefndur af Íslandi), en Seðlabanki Evrópu skipaði oddamanninn."

Páll Geir Bjarnason, 1.7.2009 kl. 02:53

4 Smámynd: Sævar Einarsson

Besta mál, hvað er þá verið að þrasa og gera einhvern kúgunar þrælasamning um Iceslave fyrst það stóð eða stendur til að skipa gerðardóm ? eða er ég að misskilja eitthvað ? þá fer þetta fyrir gerðardóm og fáum úr því skorið hvort skuldbindingar Íslands eiga að falla á landsbankann en ekki íslenska ríkisborgara.

Sævar Einarsson, 1.7.2009 kl. 03:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband