Framkoma forseta lítt til að auka virðingu Alþingis.

Forseti Alþingis verður að vera þess umkominn að gæta hófs en það gerði þingforseti alls ekki, því fer svo fjarri, hún tók málfrelsið af þingmanni með bjölluslætti svo furðu sætti.

Því til viðbótar bandaði hún bjölluhamrinum eins og skipa þingmanni í burtu, sem er fáheyrð framkoma og ég hefi ekki áður séð fara fram á Alþingi Íslendinga.

Þingforsetar hafa hingað til leyft umræðu um fundarsköp um flest innan tímamarka án þess að " ritskoða " þá hina sömu umræðu, þar að lútandi, en tímamörk slíkrar umræðu eru stutt.

Ég tek undir það með formanni Framsóknaflokksins að þessi framkoma sé óásættanleg.

kv.Guðrún María.


mbl.is Óásættanleg framkoma forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Skondið. Afhverju er ég ætíð ósammála þér. Sigmundur var einfaldlega að misnota þingsköp til að reyna að skora pólitískar keilur. Það var eðlilegt að stoppa hann, en hann hefði auðveldlega getað tekið upp þráð um störf forseta, en það gerði hann ekki. Fór sjálfur með skottið á milli lappana eins og var viðeigandi miðað við efni máls. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 17.6.2009 kl. 00:25

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Gunnlaugur, ætli það sé ekki vegna þess að ég er oft ósammála þínum flokki Samfylkingunni, kanski.

Sigmundur Davíð var ekki að gera nokkurn skapaðan hlut annað en það sem flest allir þingmenn hafa fengið að gera innan tímamarka að ræða umræðu um umræðu og stjórn forseta þingsins.

Það átti hann að fá frelsi til að gera og sannarlega án þess að þurfa að meðtaka bjölluhamagang forseta þings, sem og bendingar með bjölluhamri.

Því miður þarna missti forseti þingsins stjórn á sér og ætti að biðjast afsökunar á því hinu sama við þingjheim og þjóð.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.6.2009 kl. 01:39

3 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Algerlega sammála þér Guðrún !

Jón Á Grétarsson, 17.6.2009 kl. 07:10

4 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Ég get nú ekki verið sammála þér Guðrún María. Framkoma Sigmundar var LANGT fyrir utan öll siðferðismörk. Hann biður um orðið til að ræða fundarstjórn forseta. Ekki eitt orð kom fram hjá honum um fundarstjórnina, heldur byrjaði hann að ræða málefni er snertu forsætisráðherra.

Eðlilega stöðvaði forseti þingsins umræðu sem var utan efnisþátta umbeðinnar umræðu. Vald til slíks er ALFARIÐ í höndum forseta og úrskurðir hans eru ekki til umræðu; ekki frekar en ákvörðun dómara á íþróttavelli. Ef Sigmundur hefði talið brotið á sér, var leið hans að kvarta við forsætisnefnd, en ekki standa í þrasi við þegar tekna ákvörðun forseta, sem stjórnaði fundi.

Þess má einnig geta að fram hefur komið að Ásta Ragnheiður hafi fyfrirfram tilkynnt þingheimi að harðar yrði fylgt eftir reglum um ræðuefni undir liðnum "fundarstjórn forseta". Full þörf hefur verið á slíku og óvirðing sú sem þingmenn undanfarinna ára hafa sýnt fundarsköpum, er vart til viðmiðunar um eftirbreytni komandi tíma; varla ef ætlunin er að hefja störf Alþingis til einhverrar virðingar.  

Guðbjörn Jónsson, 17.6.2009 kl. 13:38

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Menn hafa að sjálfsögðu leyfi til að vera mér ósammála en það breytir ekki minni skoðun í því efni að hér fór forseti þingsins sjaldséðu offari.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.6.2009 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband