Augnablik..,- vinnuhópur samtaka á vinnumarkaði og stjórnvalda ???

Hvenær var ákvörðun um að stofna vinnuhóp með stjornvöldum borin undir mig sem launþega ?

Hver tók ákvörðun þessa af hálfu þeirra sem eiga að gæta hagsmuna launþega í landinu ?

Einkaframkvæmdir með fjárfestingum þar að lútandi fyrir mína peninga sem ég hefi greitt í lífeyrissjóði ?????

Á ekki að spyrja mig ?

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Stór verk í einkaframkvæmd?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Sigurðarson

Óskaplega ertu neikvæð Guðrún María. Það veitir nú ekki af framkvæmdum og störfum í dag. Ef þú ert með betri kost, vinsamlegast varpaðu honum þá fram í stað þess að baula niður það sem fólk er að reyna að gera gott.

Lifðu heil.

Baldur Sigurðarson, 7.6.2009 kl. 03:36

2 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Loksins eitthvað af viti!

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 7.6.2009 kl. 04:03

3 identicon

Þarna hefurðu það svart á hvítu Guðrún María. Þú átt bara að halda kjafti og vera hress meðan að aðrir henda lífeyrissjóðunum okkar í verkefni sem eru svo vafasöm að einginn banki eða fjárfestingaraðilar vilja setja í það peninga.

Og þetta er svo gráupplagt eins og þú bendir á af því að það þarf ekkert að spyrja þá sem eiga þessa peninga um leyfi. Svo er bara að koma eftir einhver ár og segja; æ æ sorry, þetta fór víst ekki alveg eins og það var ætlað og peningarnir eru horfnir...

Og læra af reynslunni eftir sukkið?! Gleymum því og brjótum upp síðasta sparibaukinn þar sem enn eru eftir peningar.

Jón Bragi (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 06:55

4 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Það er verið að skoða framkvæmdir sem eru þjóðhagslega hagkvæmar á sama tíma og þær veita atvinnu. Ég sé ekki betur en þetta sé að stóru leiti vegavinna en einnig mörg störf fyrir byggingamenn sem eru fjölmennastir í atvinnuleysinu núna. Ef hægt er að slá saman veltu í hagkerfi, framkvæmd sem er hagkvæm, atvinnusköpun og góðri fjárfestingu fyrir lífeyrissjóðina á tímum sem hagnaður af fjárfestingum og hlutabréfamarkaðinum er enginn þá segi ég flott. Sérstaklega þar sem nefndar framkvæmdir eru metnar hagkvæmari en aðrar fjárfestingar sem í boði eru fyrir lífeyrissjóðina og kosta ekki gjaldeyri nema að litlu leyti.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 7.6.2009 kl. 09:41

5 identicon

"Sérstaklega þar sem nefndar framkvæmdir eru metnar hagkvæmari en aðrar fjárfestingar sem í boði eru fyrir lífeyrissjóðina og kosta ekki gjaldeyri nema að litlu leyti..." skrifar þú Adda Þorbjörg.

Hvaða aðilar eru það sem hafa gert þetta mat. Og að þetta kosti ekki gjaldeyri. Það er verið að tala um að taka heim það sem lífeyrissjóðirnir eiga erlendis og koma með það inn í íslenskt hagkerfi ef hægt er þá að tala um hagkerfi á Íslandi í dag. Skipta þessum þeningum í íslenskan gjaldeyri sem er nánast ónýtur og hlegið er að í öðrum löndum og ekki hægt að skipta frekar en gjaldeyri frá Zimbabwe. Og þetta kallar þú hagkvæmt.

Ef þetta er svona gráupplögð fjárfesting af hverju bíða þá ekki bankar og fjárfestar bæði íslenskir og erlendir í röðum eftir því að fá að setja í þetta peninga? Nei, það á að telja okkur eigendum lífeyrissjóðanna trú um að þetta sé það besta sem við getum gert við peningana okkar á sama tíma og eingum öðrum heilvita banka mundi detta slíkt í hug.

Þetta geta verið ágætar framkvæmdir í sjálfum sér og alltaf gaman að nýjum vegum en þetta eru framkvæmdir sem skila eingum gjaldeyri inn í hagkerfið. Ekki einni einustu krónu.

Jón Bragi (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 22:27

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Alveg sammála þér Jón Bragi, þetta er glapræði.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.6.2009 kl. 01:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband