Hvers vegna getur Egill rætt við Njörð, en ekki Ástþór, eða hina talsmenn Lýðræðishreyfingarinnar ?

Var að sjá það að Egill Helgason ríkisstarfsmaður ríkissjónvarpsins, fær til sín Njörð P Njarðvík, öðru sinni til umræðu í sinn þátt á morgun, en svo vill til að Lýðræðishreyfingin bauð fram til þingkosninga með hugmyndafræði sem er af sama toga og Njörður hefur rætt og ritað um.

Með fyllstu virðingu fyrir því að ræða við Njörð þá er það áleitin spurning hvernig þessum þætti er stýrt hvað varðar það að fá að koma á framfæri í ríkismiðlinum fleiri röddum í voru samfélagi.

Sama máli gildir varðandi það atriði að undantekningalítið hefur þáttastjórnandinn Egill Helgason fengið til sín í þáttinn, jámenn um aðild að ESB, í langan tíma svo mjög að mér og mörgum öðrum sem telja sig nægilega vel upplýsta um ókosti aðilar að sambandinu, er misboðið.

Hafi þáttastjórnendur vald til þess að ráða viðmælendum í einu og öllu án þess að þurfa að undirganga jafnræðissjónarmið andstæðra skoðanaskipta, þá er eitthvað að í stjórnun þessarar stofnunar, því miður.

Slíkt hlýtur að vera áskorun til annarra ljósvakamiðla í landinu að gera betur í þessu efni en breytir þvi ekki að stórfurðulegt ritstjórnarvald eins manns virðist þar á ferð, sem skattgreiðendur taka þátt í að borga.

kv.Guðrún María.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Þessi Lýðræðishreyfing er ómarktæk. Hún náði t.a.m. ekki nema um 1000 atkvæðum í síðustu kosningum. Ástþór er af flestum talinn lýðskrumari og á ekkert erindi í lýðræðislegar umræður.

Hilmar Gunnlaugsson, 3.5.2009 kl. 02:25

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Hilmar.

Nei það er ekki furða þegar ekki er hægt að kynna málefni sín með sama móti og önnur framboð í ríkisfjölmiðli allra landsmanna sem skattgreiðindur borga.

Mér þætti fróðlegt að vita hvort þú sjálfur vinnur við lýðskrum því svo vill til að ég sjálf skipti um flokk en alveg sama þú bloggar og bloggar með niðurrif í garð hvers flokks á fætur öðrum ?

Ert þú félagi í Borgarahreyfingunni ?

kv.Guðrún Maria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.5.2009 kl. 02:33

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Lýðræðishreyfingunni var boðið í umræður jafnt á við aðra flokka. Hvernig fannst þér ykkur mismunað?

Ég fæ ekki borgað hér fyrir skrif mín og enn síður er ég lýðskrumari en ég hef gagnrýnt Frjálslynda flokkinn og Lýðræðishreyfinguna fyrir þau ólýðræðislegu gildi sem flokkarnir standa fyrir. Reyndar má hrósa ykkur í Lýðræðishreyfingunni fyrir að hafa ekki verið með neinn rasisma. Sömuleiðis hef ég gagnrýnt Borgarahreyfinguna lítillega. Í henni er ég ekki meðlimur. 

Hilmar Gunnlaugsson, 3.5.2009 kl. 02:45

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll aftur Hilmar.

Þetta er rangt fulltrúum Lýðræðishreyfingarinnar hefur ekki verið boðið i Silfur Egils, ásamt þvi atriði að það tók stofnunina langan tíma að setja link á framboðið, sem kom eftir að gegnið hafði verið kring um stofnunina með lúður í mótmælaskyni.

Þarf síkar aðferðir ?

Lýðræðishreyfingin stendur ekki fyrir annað en beint lýðræði, sem auðvitað þjónar ekki viðvarandi flokksræði allra flokka sem sátu á þingi.

Rasimsi er ekki til í mínu orðasafni en umræða um málefni innflytjenda er nauðsynleg ekki hvað síst til þess að standa vörð um hagsmuni þeirra.

Þá veit ég ég það að þú tilheyrir ekki Borgarahreyfingu, takk fyrir þær upplýsingar.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.5.2009 kl. 02:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband