Vinstri Grænir geta ekki leikið tveimur skjöldum lengi.

Tækifærisdans VG hefur verið all sýnilegur því miður varðandi aðkomu að þessum mótmælum, þar sem flokkurinn hefur reynt að slá sig til riddara sannleikans hins eina..... hafandi tekið þátt í því að samþykkja til dæmis kvótakerfi sjávarútvegs kjörtímabil eftir kjörtímabil á Alþingi.

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Segir þingmenn VG hafa veist að lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Héðinn Björnsson

Vinstri Grænir eru tíu ára gamall flokkur og hefur ekki tekið þátt í að samþykkja kvótakerfið. Eða veist þú um einhverja atkvæðagreiðslu um bætur eða afnám kvótakerfisins sem Vinstri Grænir hafa ekki stutt eða komið í veg fyrir að kæmi til atkvæða?

Hvað varðar þessi mótmæli hefur VG alltaf sagt eins og er að þau eru sjálfsprottin. VG hefur stutt þessi mótmæli en hafa ekki neitt afl til að stýra þeim á neinn hátt, enda frekar fámennur flokkur þegar kemur að virkum félögum, né neinn áhuga á að gera slíkt.

Héðinn Björnsson, 25.1.2009 kl. 02:34

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

VG hefur aldrei samþykkt kvótakerfið. Og það má VG eiga að þeir hafa lagt fram tillögu að því að kvótakerfið verði lagt niður í áföngum.

Jóhannes Ragnarsson, 25.1.2009 kl. 18:34

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Hvaða tillögur eru það jóhannes.Ég hef allt frá stofnfundi VG ekki séð neina tillögu eða sá  neina tillögu þess efnis þegar ég var í VG.Þvert á móti hefur VG alltaf talað fyrir því að ekki verði frjálsar veiðar og kvóti verði á því sem veiða má.Það er að vilja kvóta kerfi.Rétt eins og Frjálslyndiflokkurinn.En VG hefur viljað úthluta hluta kvótans á sveitarfélögin, auka byggðakvótann Byggðakvóyinn er mesta spillingartæki sem fundið hefur verið upp, og ganga kærurnar stanslaust vegna hans til umboðsmans Alþingis.Er nú svo komið að allir aðilar í sjávarútvegi á svæðinu Hornafjörður til og með Snæfellsnesi vilja hann burt.Bæði á suðurnesjum og Snæfellsnesi vilja aðilar sem fengið hafa byggðakvóta hann til fjandans. því mönnum ofbýður spillingin við að úthluta honum.

Sigurgeir Jónsson, 25.1.2009 kl. 22:07

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Og úthlutunin á byggðakvótanum er ekki betri annarstaðar á landinu ,ef ekki verri.

Sigurgeir Jónsson, 25.1.2009 kl. 22:33

5 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Svakalega ertu gáfuð og málefnin þín vandlega útpæld.

Mér líður stórvel að öðrum bloggurum gengur ekkert að reka þvæluna ofan í kokið á þér með morknaðri kaldastríðsbeitunni.

Rúnar Þór Þórarinsson, 26.1.2009 kl. 04:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband