Endalok Framsóknarflokksins í íslenzkum stjórnmálum ?

Hinn mikli áhugi Framsóknarmanna á Evrópusambandinu sem hófst þegar fyrrum formaður Halldór Ásgrímsson gaf tóninn, er eitthvað sem menn virðast ætla að róa áfram með.

Valgerður Sverrisdóttir hefur dansað á Evrópulínunni frá því Halldór gaf tóninn og hefur að mínu viti komið sér í hóp tækifærissinna í íslenskri ´pólítik með því móti.

Hvort menn telja það varða tilvist flokksins að dansa þennan Hrunadans skal ég ekki um segja, en verði sú niðurstaða ofan á að flokkurinn muni komast á sömu braut og Samfylking í þessum efnum þá efast ég mjög um framtíð þess hins sama flokks.

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Lagt til að sótt verði um aðild að ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Samfylkingin hefur hættulega stefnu í ESB málum, hún vill inn sama hvað býðst.

Fyrir flokksþingi Framsóknar liggur tillaga um að farið verði í aðildarviðræður og verði ákveðnum ströngum skilyrðum fullnægt, verði samningur lagður fyrir þjóðina til samþykktar eða synjunar.

Þú getur ekki verið á móti því að slík ákvörðun sé tekin á grundvelli traustra upplýsinga í stað gisks, skröks og útúrsnúnings, í bland við réttar upplýsingar?

Gestur Guðjónsson, 15.1.2009 kl. 01:32

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Gestur.

Ég þarf ekki einu sinni að hugsa um aðildarviðræður sökum þess að í mínum huga eru kostir og gallar nú þegar á borði, þar sem gallarnir umfram kosti sliga vogarskálarnar á grundvelli heilbrigðar skynsemi til framtíðar fyrir komandi kynslóðir.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.1.2009 kl. 02:03

3 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Ég hélt að ég væri sama sinnis fyrir nokkru, en ég hef nú lesið þær tvær Evrópuskýrslur sem unnar hafa verið í Framsóknarflokknum og þá skýrslu sem unnin var af Utanríkisráðuneytinu.

Þar sannfærðist ég um að mikið af þeim forsendum sem menn hafa verið að gefa sér í umræðunni eiga ekki við rök að styðjast. Forsendur sem skipta mig miklu máli, eins og fullveldi, landbúnaður og yfirráðin yfir fiskveiðiauðlindinni og orkunni.

Þess vegna tel ég nauðsynlegt, til að geta tekið málefnalega afstöðu til þess hvort við eigum að vera inni eða fyrir utan, að við komumst að því svart á hvítu hvað aðild fæli í sér. Það gerum við bara með aðildarviðræðum.

Gestur Guðjónsson, 15.1.2009 kl. 09:43

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Halldór Ásgrímsson lagði til að ESB aðild yrði skoðuð umsvipað leyti og bankarnir voru seldir.Það var fyrst og fremst vegna þess að honum leist ekki á krónuna.Eina vonin til að við hefðum náð samningum við ESB sem við hefðum getað sætt okkur við er að það hefði verið undir forystu Halldórs.Það var ekki gert og nú er það of seint .

Sigurgeir Jónsson, 16.1.2009 kl. 17:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband