Vald fjölmiðlanna.

Vald fjölmiðla er mikið og fréttamaður í atburðarrás atburða sem þessara sem þarna voru hefur að mínu viti afhjupað sig sem uppreisnarsegg við ummæli sem þessi í hita leiksins eins bjánalegt og það nú er, því miður.

Hvers konar yfirlýsing breytir þar engu um.

kv.gmaria.


mbl.is Yfirlýsing frá Láru Ómarsdóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Satt segirðu og það sem verra er að það virðist ekki vera að við sauðsvartur almúginn megum "gagnrýna" vinnubrögð fréttamanna, sem mér þykir oft á tíðum ansi vafasöm svo ekki sé nú fastar að orði kveðið, því fréttamenn og þeir sem við fjölmiðla vinna virðast setja sjálfa sig á stall fyrir ofan aðra.  Þessum orðum mínum til stuðnings ætla ég að segja eina litla sögu en hvort það er tilviljun eða ekki þá kemur Lára Ómarsdóttir þar við sögu.  Svo var snemma í vetur að flutningaskipið AXEL strandaði fyrir utan Hornafjarðarós og í framhaldi af því urðu væringar um borð og eitthvað vesen sem ég er nú búinn að gleyma hvað var.  En Stöð 2 var á staðnum og var Lára Ómarsdóttir fulltrúi Stöðvar 2 á staðnum og flutti ansi "dramatískar" fréttir af málinu og meðal annars sagði hún að skipstjórinn myndi sennilega missa réttindin vegna gáleysis við störf.  Þessi ummæli þótti mér nokkuð vafasöm og ekki koma málinu neitt við þar sem ekki höfðu farið fram nein sjópróf og vildi ég meðal annars fá að vita hvaða heimildir væru fyrir þessu.  Ég hringdi á Stöð 2 og fékk samband við vaktstjóra frétta sem var Kristján Már Unnarson, þegar ég var búinn að rekja mál mitt og spurði hann svo að því hvort honum þætti að fréttatímarnir  ættu að vera vettvangur fyrir "Gróusögur" sagði hann: " Þú ert búinn að koma þínum sjónarmiðum á framfæri" og kvaddi.

Jóhann Elíasson, 25.4.2008 kl. 08:22

2 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Afhjúpa sig sem upreisnars-egg hehe.

Gleðilegt sumar vinkona!

Kjartan Pálmarsson, 25.4.2008 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband