Íslendingar þurfa að líta í eigin barm áður en haldið er af stað að heiman.

Það hefur aldrei talist góð lexía að hlaupa af stað og hjálpa öðrum ef maður sjálfur er hjálparþurfi og svo vill til að fjöldinn allur af fólki hér á landi sligast undan vaxtakostnaði fjárskuldbindinga þar sem þeim hinum sömu hefur verið talinn trú um að samþykkja samninga um kaup og kjör undir formerkjum stöðugleika í efnahagsmálum sem enginn er þó sýnilegur.

Fyrst er að taka á vandamálum er snúa að íslenskum þegnum af hálfu stjórnvalda í landinu.

kv.gmaria.

 


mbl.is Geir H. Haarde: Setur ekki sérstaka pressu á Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl og blessuð.

Ég er sko alveg sammála þér. Við vitum öll um marga sem hafa það mjög skítt. Kannski segja sumir já þau kom sér í þessa stöðu sjálf en fólk þarf að komast úr þessu skuldabasli s.s. bankalánum en vaxtaokrið er svo gífurlegt að það er ekki mögulegt að mér sýnist. Er ég ekki að taka persónuleg dæmi heldur sé ég hvernig skuldirnar eru að brjóta marga niður. Í mörgum tilfellum eru börn inní svona aðstæðum. Það hlýtur að vera ömurlegt að alast upp við svona skilyrði, foreldrar alltaf með áhyggjur. Ekki beint barnvænt þjóðfélag. Ég var að vona að Samfylkingin myndi nú berjast fyrir bættum kjörum fólks en kannski þurfum við að bíða þangað til hálfu ári fyrir næstu kosningar.

Kíktu á pistilinn hans Teodórs um sama mál.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband