Að skapa fordæmi og vera góð fyrirmynd.

Einstaklingshyggjan í voru þjóðfélagi og birtingarmyndir hennar svo sem öfund og nöldur og nag, í garð náungans, hroki, frekja og drottnunargirni er eitthvað sem við skiljum svo ekkert í að hafi síðar úgáfu af öðru tagi í formi ofbeldisúrlausna ýmis konar í samskiptum manna á milli.

Hamingjuformúlan í formi nægilegs sýnileika af alls konar málamyndalífsgæðum í formi umsvifa af fjárútlátum fyrir vikið, steinsteypukumböldum, bílum, ferðalögum um hnöttinn, leiðir ekki endilega til hamingju sérstaklega.

Hamingjan kann hugsanlega að feta einfaldari vegi og vera til á heimilum okkar í samskiptum við okkar nánustu dags daglega í formi kærleiks og elsku, og heilbrigðis til likama og sálar.

Hæfileikinn til að velja og hafna er því mikilvægur og þarf að lærast snemma á æviskeiði hvers manns.

Leiðtogar okkar hvort sem um er að ræða stjórnvöld við stjórnvöl landsins eða foreldrar barna eru fyrirmyndir og eftir höfðinu dansa limirnir.

kv.gmaria.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Birtingamynd einstaklingshyggjunnar og birtingamynd hennar eru fyrst og fremst yfirgangur, græðgi og kuldi.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 27.11.2007 kl. 11:34

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl GMaría. Þetta er rétt hjá þér. Allt of mikið að öfundarfólki sem er áberandi í þjóðfélaginu. Það kann að kalla á ofbeldi og heift þegar mikill munur er orðinn á lífskjörum fólks og aldrei að vita hvar það brýst fram. T.d. nauðganir oft afleiðing af lélegu sjálfsmati karlmanna sem þola ekki höfnun og persónugera hana við sína lélegu sjálfsmynd og beita þá valdi. Ekki veit ég hvort til er hamingjuformúla en ég held sjálf að það sé bara ánægjustundir og augnablik sem maður safnar í minningahauginn sinn. Um að gera að vera með opinn hug og hjarta og leyfa þessum "mómentum " að koma til sín. Líði þér alltaf sem best vina mín kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 27.11.2007 kl. 14:58

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Einmitt þetta þyrftu allir að hugleiða.  Falleg og góð hugleiðing sem eflaust á erindi við flesta.

Jóhann Elíasson, 27.11.2007 kl. 22:57

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl öll.

Já það er ágætt að velta upp lífsgæðaformúlinni öðru hvoru en einkum og sér í lagi eru það blessuð börnin og tíminn sem við finnum með þeim sem móta framtíðina.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 28.11.2007 kl. 02:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband